|
|
 |
|
|
Mikil umræða hefur verið undanfarið um verndun gamalla húsa og menningarverðmætin sem felast í því að varðveita þau. Þessi umræða hefur einkum snúist um hús í Reykjavík en svo hafa Ísfirðingar líka blandað sér í þessa umræðu með sína gömlu byggð. Mér hafa verið hugleikin gömlu húsin á útplássinu á Bíldudal og nú þegar tillögur eru um að rífa einhver þeirra vegna fyrirhugaðra snjóflóðavarna, þá finnst mér full ástæða til að vekja athygli á þessu svæði. Að mati kunnugra á svæðinu er engin þörf á að fjarlægja hús vegna þessara framkvæmda þó að fimm þeirra lendi innan væntanlegra leiðigarða. Farvegur fyrir vatn úr Búðargili hefur fram að þessu verið vestan við „Hrygginn” og liggur þar í ræsi undir veginn á milli Vegamóta og Edinborgar. Nú er gert ráð fyrir að þessi farvegur og hugsanleg flóð úr Búðargili fari fyrir utan hrygginn. Ég get enga ástæðu séð fyrir því að rífa þurfi nokkur hús vegna þessa. Aðeins verður leyft að nota þessi hús sem sumarhús og hættan því ekki mikil.
Bíldudalur byrjaði að byggjast upp eftir 1880 og þorp byggðist upp á örskömmum tíma eins og kunnugt er. Húsin á útplássinu voru fyrst og fremst íbúðarhús og tilheyrandi útihús, kálgarðar og tún. Það sem ég vil vekja athygli á er að þarna er samfellda byggð gamalla húsa og nauðsynlegt að gera faglegt mat á varðveislugildi svæðisins alls frá Valhöll að Jaðri.
Til þess að vekja athygli á þessu þá skrifaði ég bæjarstjóra og bæjarfulltrúum Vesturbyggðar eftrifarandi bréf þann 20. janúar síðast liðinn.
Til Bæjarstjórnarinnar í Vesturbyggð
Vegna væntanlegra framkvæmda við snjóflóðavarnir á Bíldudal þá vil ég koma þeirri skoðun minni á framfæri að um sérstaka og mjög heillega gamla byggð sé að ræða á útplássinu á Bíldudal. Nær öll húsin frá Valhöll og úteftir að Jaðri eru byggð fyrir 1900. Aðeins tvö þessara húsa eru yngri en 100 ára og við nokkur þessara húsa standa ennþá útihús sem voru dæmigerð fyrir byggðina á Bíldudal þar sem fólk stundaði búskap meðfram öðrum störfum. Mig langar til að koma því á framfæri við bæjarstjórn Vesturbyggðar að hún sjái til þess að hús séu ekki rifin að ástæðulausu og að sá möguleiki sé skoðaður að friða þetta svæði.
Húsin sem keypt voru af Ofanflóðasjóði þarf að auglýsa og athuga hvort einhverjir hafi áhuga á því að gera þau upp og halda þeim við, gegn því að fá þau til afnota eða eignar. Húsin sem um er að ræða eru Árnahúsið, Ás, Bjarg (Steinhúsið), Höfðabrún og Brekka (Gamla símstöðin). Bjarg virðist vera illa farið en alls ekki er útilokað að einhverjir hefðu áhuga á að gera það upp og ekki er heldur útilokað að styrkir fengjust til þess þar sem hér er um að ræða eitt af elstu steinsteyptu húsum landsins.
Ekki veit ég hvort gerð hefur verið sérstök úttekt á gömlum húsum í Vesturbyggð eða hvort einhver stefna hafi verið mótuð í þessum efnum. Ef svo er ekki þá hvet ég til að hvort tveggja sé gert.
Virðingarfyllst Jörundur Garðarsson

Út- og miðpláss frá sjó

Valhöll, Glaumbær og Árnahús

Árnahús og skúrar þess

Skúrar Árnahúss og Áss, þá Ás og Höfðabrún

Ás og skúrar þess

Höfðabrún

Brekka (gamla símstöðin)

Bjarg (Steinhúsið)

Hjallur frá Bjargi og útihús fjárbóndans

Hólmarahús

Jaðar

Bergstaðir og Sjóbúð
|
 |
| Til baka |
 |
|
 |
|