Bíldudalur
- Kauptún við
Bíldudalsvog í Arnarfirði
Bíldudalur er í góðu skjóli fyrir veðri og vindum og er þar oft á sumrin slík veðursæld að með ólíkindum þykir.

Þorpið Bíldudalur stendur við Bíldudalsvog sem er einn Suðurfjarða Arnarfjarðar. Bíldudalur er
eini þéttbýliskjarninn í Arnarfirði og þar búa á þriðja hundrað manns.
Bíldudalur er sjávarþorp þar sem fiskveiðar og fiskvinnsla er aðalatvinnuvegur. Bolfiskvinnsla og rækjuvinnsla er undirstaða atvinnulífsins á staðnum.
Verslun hófst snemma á Bíldudal og settu margir merkir athafnamenn
og konur mark sitt á staðinn og má sjá þar mörg hús frá 19. öld sem tengdust verslun, útgerð og fiskvinnslu.

Á Bíldudal er ágæt aðstaða fyrir ferðafólk, gisting, veitingarekstur og tjaldstæði. Ýmis afþreying stendur til boða. Áhugamenn um golf geta tekið kylfurnar með því góður níu holu golfvöllur er í
miðjum dalnum og einnig er þar frjálsíþróttavöllur.
Einn besti flugvöllur Vestfjarða er í næsta firði um 5 km frá bænum. Sveitasundlaug
er í Reykjafirði þar sem er náttúrulegur jarðhiti og einkar notalegt er að baða sig í henni.
Einnig er leiðin út í Ketildali stórskemmtileg og margt að sjá, opnar sandstrendur, þverhnípt fjöll, bergtröll og
önnur listaverk náttúrunnar.
|