Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíđ | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirđingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Bíldudalskirkja
  - Vígđ 2. desember 1906

Ţegar íbúum Bíldudals fór fjölgandi um aldamótin 1900 kom brátt í ljós ađ ţeir undu ţví illa ađ hafa ekki kirkju á stađnum. Kirkjusókn var til Otradals og lá landleiđin yfir Litlueyrarós, Byltu og fyrir Haganes.

Um og eftir aldamótin tók Málfundafélagiđ Bíldur, er ţá starfađi af miklum krafti, máliđ upp og náđist fljótt samstađa um ađ byggja kirkju á Bíldudal.

Bíldudalskirkja
Bíldudalskirkja

Bíldudalskirkja var byggđ 1905-1906 og vígđ 2. desember 1906 af ţáverandi prófasti sr. Bjarna Símonarsyni á Brjámslćk ásamt sr. Böđvari Bjarnasyni á Hrafnseyri og sóknarpresti sr. Jóni Árnasyni en sr. Jón Árnason hafđi veriđ vígđur til Otradals áriđ 1891.

Í Otradal hafđi veriđ prestur og sóknarkirkja Suđurfjarđa frá öndverđu og er hennar getiđ í kirknatali Páls Jónssonar frá 1200. Ekki er lengur kirkja í Otradal en nokkur minnismerki er ađ finna ţar í gamla kirkjugarđinum. 

Í Bíldudalskirkju eru ýmsir merkir gripir. Ţar á međal er skírnarsár, kaleikur og patína úr silfri. Enn má telja ţar tvćr altaristöflur. Sú yngri er frá 1916 máluđ af Ţórarni B. Ţorlákssyni listmálara og sýnir Maríu viđ gröfina er Kristur sagđi: „Kona, hví grćtur ţú?" Hin eldri er frá 1737 úr Otradalskirkju og sýnir heilaga kvöldmáltíđ. Í kirkjunni er predikunarstóll úr Otradalskirkju frá 1699 međ myndum af Kristi og postulunum. Selárdalskirkja tilheyrir prestakallinu.

Gamli barnaskólinn og Bíldudalskirkja
Gamli barnaskólinn og Bíldudalskirkja

Höfundur Bíldudalskirkju er Vestfirđingurinn Rögnvaldur Á. Ólafsson sem oft hefur veriđ nefndur fyrsti íslenski arkitektinn. Kirkjan er steinsteypuhús og er fyrsta steinsteypubyggingin sem Rögnvaldur teiknađi. Hún er međal annars sérstök fyrir ţađ ađ í yfirborđ útveggja hennar eru grópađar fúgur í líki steinhleđslu. Upphaflega var kirkjan međ skorstein á vestari enda gengt turni. Um langt árabil var einnig ljósakross á turninum en í dag skartar kirkjan sínum upphaflega krossi.

Ađrar kirkjur sem Rögnvaldur teikađi eru Ţingeyrarkirkja, Gufudalskirkja og Hjarđarholtskirkja í Dölum en hann teiknađi margar fleiri.

Bíldudalskirkja er í Bíldudalsprestakalli í Barđastrandarprófastsdćmi. Hún er friđuđ frá 1. janúar 1990 samkvćmt ţjóđminjalögum. Bíldudalskirkja er hin reisulegasta og sómir sér vel.

Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíđ | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirđingafélagiđ kt. 410288-1179 er skráđ átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is