Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíđ | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirđingur.is
Draugur Draugur Draugur
Útilistaverk Óskars Magnússonar
[20.10.2002]

Í garđi viđ Dalbraut 50 á Bíldudal má sjá mörg skemmtileg listaverk eftir Óskar Magnússon. Listaverk ţessi eru ýmist unnin í járn eđa steinsteypu og bera merki um mikiđ hugmyndaflug og sköpunargleđi listamannsins. 

Haförninn viđ Arnarklett

Mesta athygli vekur stór og tígulegur haförn sem Óskar steypti úr afgangs steypuslettum ţegar hann vann viđ ađ reisa hús sitt. Húsiđ kallar hann Arnarklett.

Gosbrunnurinn međ boltanum

Gosbrunnur sem heldur uppi bolta vekur einnig mikla athygli. Ţađ er auđvelt ađ gleyma sér ţegar horft er á boltann dansandi efst á bununni. Detti boltinn niđur leitar hann aftur í miđja bununa og lyftist upp á ný.

Kvikmyndastjarnan Gréta Garbo

Járnlistaverk Óskars eru af ýmsum toga. Má ţar nefna Grétu Garbo sem arkar áfram međ sín dökku sólgleraugu og ber hönd fyrir höfuđ sér til ađ verjast ágangi ljósmyndara.

Hösmagi eygir Gretti

Hösmagi var mannýgur hrútur í Drangey. Ţeir brćđur Grettir og Illugi höfđu gaman ađ honum og tímdu ekki fyrir nokkurn mun ađ aflífa hann ţótt stundum vćri fátt um fína drćtti í fćđuöflun.

Pulsukallinn

Kraftlyftingamađurinn bjástrar viđ lóđin ţung. Lítil frćnka Báru, konu listamannsins, var eitt sinn í heimsókn ásamt foreldrum sínum og ţegar hún sá lyftingamannin hrópađi hún upp: „Nei sko, ţarna er pulsukallinn!”

Blómiđ sem bćrist í vindi

Blómiđ er međ gormum í stilk og laufblöđum og bćrist skemmtilega í hćgum vindi. Ef hvessir hraustlega lćtur blómiđ öllum illum látum.

Ljósár

Ljósár heitir ţetta listaverk og er pćling listamannsins um himingeyminn.

Laxinn

Stangaveiđi hefur lengi veriđ eitt af mörgum áhugamálum Óskars og hefur hann margan laxinn veitt í gegnum tíđina. Hvort nokkur ţeirra hefur veriđ svona vćnn skal ósagt látiđ en ţennan myndarlega lax gerđi Óskar úr steinsteypu.

 

Blómiđ og haförninn
Blómiđ og haförninn

Haförnin, gosbrunnurinn og blómiđ
Haförnin, gosbrunnurinn og blómiđ

Ljósmyndir Jón Ţórđarson (jth@snerpa.is)

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíđ | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirđingafélagiđ kt. 410288-1179 er skráđ átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is