Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíđ | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirđingur.is
Draugur Draugur Draugur
Páll Björnsson
  - Prestur og prófastur í Selárdal
[23.04.2003]

Páll Björnsson fćddist 1621 og lést 23. október 1706. Foreldrar hans voru Björn Magnússon sýslumađur í Bć á Rauđasandi og síđari kona hans Helga Arngrímsdóttir lćrđa Jónssonar. 

Páll lćrđi í Hólaskóla viđ mikinn orđstír og varđ stúdent tvítugur áriđ 1641. Hann var kominn í Kaupmannahafnarháskóla sama ár, lauk prófi 1644 og kominn heim sama ár.

Hann var konrektor í Hólaskóla veturinn 1644-1645, vígđist til Selárdals 25. mars 1645, tók viđ öllum stađnum 1647 og sat Selárdal í 61 ár til ćviloka. Hann varđ einnig prófastur í Barđastrandasýslu í yfir 50 ár. Séra Páll er sagđur hafa afţakkađ biskupsstöđu í Skálholti vegna ţess hve vel fór um hann í Selárdal. Hann hefur veriđ sagđur af samtímamönnum minnisstćđur ađ gestrisni og höfđinglegu ljúflyndi.

Hann var einn lćrđastur Íslendinga á 17. öld og flestum fjölhćfari. Tungumálamađur var hann svo af bar, einkum í Austurlandamálum, hebresku og grísku og kenndi hann mörgum ţau mál. 

Hann var vel ađ sér í stćrđfrćđi, kunni skil á siglingafrćđi og stjörnufrćđi og reiknađi fyrstur út hnattstöđu Bjargtanga. Gott skyn bar hann á náttúrufrćđi og skrifađi margt um trúfrćđi.

Hann hafđi útrćđi í Selárdal og fann upp betra lag á bátum en áđur hafđi veriđ. Hann er talinn fyrstur Íslendinga til ađ stunda fiskveiđar af ţilskipi og ţví brautryđjandi á ţví sviđi og merkur mađur í atvinnusögu landsins.

Séra Pál hneigđist einnig ađ dulfrćđi og ţrátt fyrir allan sinn lćrdóm og hagnýta ţekkingu var hann barn síns tíma. Kom ţar til međal annars ađ kona hans, Helga Halldórsdóttir (1617-1704), var haldin langvinnri taugaveiklun og geđbilun sem kennt var göldrum. Lá oft viđ sturlun margra heimamanna í Selárdal af ţesum sökum og flýđu menn bćinn. Voru alls fimm menn brenndir til bana vegna ţessara mála (sex segir Einar Laxness). Ađ öđru leyti en í galdramálum var hann ekki talinn ofstćkismađur. 

Ţorleifur Kortsson lögmađur (d.1698) mun eiga stóran ţátt í ţví hvernig mál ţróuđust í ţessum ofsóknum séra Páls. Ţess má einnig geta ađ hálfbróđir séra Páls var Eggert ríki Björnsson sýslumađur í Barđastrandasýslu sem sagđur er hafa gengiđ hart fram í galdramálum.

Tvö börn ţeirra Helgu og Páls bjuggu áfram í Arnarfirđi, séra Halldór sat Selárdal eftir föđur sinn og Ţóra átti Árna Guđmundsson á Hóli í Bíldudal.


Helgi Hjálmtýsson ( postholf@yahoo.com )
Eftir ýmsum heimildum

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíđ | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirđingafélagiđ kt. 410288-1179 er skráđ átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is