Blöðin

- Gefin út af menningu og hugsjón

Úr verkalýðsmálum - þætti sem birtist að staðaldri í Bílddælingi

- 31. mars 1951
Það er mikil nauðsyn fyrir hvern þann, sem er að byrja að vinna fyrir eigin lífsframfæri, hefur e.t.v. í huga eitthvert lífsstarf, er hann vill keppa að, eða áhugamál, er hann vill fá aðstöðu til að sinna, að kynna sér sem bezt þær félagslegu og atvinnulegu aðstæður sem stétt hans á við að búa.

Enginn getur skapað sér rétta skoðun í almennum málum, án þess, að hafa gert sér grein fyrir hlutverki og hlutskipti verkalýðsstéttarinnar í þjóðfélaginu og því, hvernig lífsafkoma allra stétta er háð framleiðslu lífsgæðanna, sem verkalýðurinn til sjós og lands leysir af hendi.

Þegar maður hefur gert sér grein fyrir þessum málum, ásamt því hverning verkalýðurinn er jafnan sviftur meginhluta þeirra verðmæta, er hann skapar með vinnu sinni, skilur hann nauðsyn og gildi stéttarsamtakanna, sem hann hefur myndað til þess, að bæta og vernda sín eigin lífsskilyrði og þjóðfélagsaðstöðu. Þá verður það ljóst, hver nauðsyn það er hverjum vinnandi manni að eiga að bakhjalli traust og víðtæk stéttarsamtök, grundvölluð á því höfuðsjónarmiði, að vernda beri og efla hag og rétt stéttarinnar, óbeizluð af flugumönnum og handbendum þeirra afla, sem gróða sinn og tilveru eiga undir því, að geta dregið sér sem mest af þeim verðmætum, sem verkalýðurinn skapar.

Þormóðsslyssins minnst

Hlusta á messu: 

 

Dagatal

Maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Vefmyndavél

Bildudalur

Notandi:gestur
ekkert lykilorð