Fréttir

Fimmtíu ára eikarbátum fagnað á Bíldudal

Húni II á siglinguEikarbátarnir og afmælisbörnin Húni II og Knörrinn koma í heimsókn á Bíldudal að kvöldi  hvítasunnudags í hringferð sinni um landið og verður heimsókninni fagnað með hátíðarhöldum. Tilefni ferðar bátanna er að á þessu ári er liðin hálf öld frá því að þeim var hleypt af stokkunum á Akureyri.

Meira...

Aukaflug í tengslum við Baunirnar

Ef mikil eftirspurn myndast þá mun Flugfélagið Ernir fljúga aukaflug 29.júní til og frá Bíldudal. Farið yrði í kringum hádegi en nánari tímasetning yrði auglýst síðar.

Eingöngu verður skráð niður í þessi flug með því að senda e-mail á  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . Fólk verður sett á biðlista og ef lágmarksþáttaka næst verður það tilkynnt með minnst viku fyrirvar

Bíldudalskallar hittast á Kænunni laugardaginn 27. apríl kl 10:00!

Bíldudalskallar hittast á Kænunni laugardaginn 27. apríl kl 10:00!
Garðar Sigþórsson eldisstjóri kynnir seiðaeldi Arnarlax í máli og myndum, fer yfir ferlið og stöðu seiða Arnarlax í dag. Allir velkomnir!!

Heiðra minningu Péturs Brynjólfssonar

Húni II á siglingu

Hollvinir Húna II. hafa skipulagt hringferð um landið í sumar. Þessi ferð er m.a farin í tilefni þess að 50 ár eru síðan báturinn var sjósettur hjá Skipasmíðastöð KEA á Akureyri.Jafnframt eru hollvinirHúna II. að hvetja til uppbyggingar á strandlífi og strandmenningu í bæjum og þorpum við sjávarsíðuna.

Lagt verður af stað þann 11. maí frá Akureyri, farið austur um land til Vestmannaeyja, þá til Reykjavíkur og þaðan til Bíldudals. Þeir verða væntanlega á Bíldudal að kvöldi 19. maí, sem er hvítasunnudagur. Þar gista þeir og fara þaðan til Þingeyrar og svo til Ísafjarðar. Með því að fara inn á Bíldudal vilja þeir heiðra minningu Péturs Brynjólfssonar, en hann lést 7. júní s.l.

Pétur Brynjólfsson var einn af þeim sem kom að smíði þessa glæsilega tréskips. Þegar skipið var síðar gert upp, til þess hlutverks sem það nú gegnir, fékk Pétur Brynjólfsson einn naglanna sem skipasmiðirnir notuðu í upphafi til minja um smíðina. Pétur Pétursson, sonur hans varðveitir nú þennan risanagla.

Sjá heimasíðu hollvina Húna II. http://www.huni.muna.is/forsida/

Arnarlax kaupir frystihúsið á Bíldudal

„Við vorum að kaupa frystihúsið á Bíldudal. Við horfum á það sem framtíðarstað fyrir geymslu. Við ætlum að nota frystihúsið sem fóðurgeymslu og erum að taka allar verksmiðjuvélar niður úti í Noregi og munum flytja þær hingað með skipi og geyma þær í frystihúsinu þar til búið er að byggja annað hús. Svo hugsum við þetta sem fóðurgeymslu og jafnvel frystigeymslu í framtíðinni,“ segir Víkingur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax ehf., á Bíldudal.

Meira...

Tækifæri í nýsköpun á Bíldudal

Aukin ferðamannastraumur og endurnýjun í atvinnulífi á Bíldudal hefur tvær hliðar. Bið er á að uppbygging Arnarlax hefjist en mikill hugur er í heimafólki að bregðast við öðrum vaxtarsprotum í atvinnulífi á suðurfjörðunum. Sama fólk hefur verið að lenda í því að vinna hjá fyrirtækjum sem fara í vinnslustopp yfir sumartímann eða verður tímabundið atvinnulaust þegar skipt er um eigendur á fyrirtækjum. Guðrún Stella Gissurardóttir hjá Vinnumálastofnun segir það miður en á annan tug einstaklinga eru án atvinnu í bænum um þessar mundir. 

Meira...

Heimildaöflun

Varðandi upplýsingaöflun um Þormóðsslysið væri ég þakklátur fyrir hvers konar minningar, upplýsingar og athugasemdir. Hef netfangið: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  og síma 898 8973.

Þormóðsslyssins minnst

Hlusta á messu: 

 

Dagatal

Maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Vefmyndavél

Bildudalur

Notandi:gestur
ekkert lykilorð