Arnarfjörður

Aukaflug í tengslum við Baunirnar

Ef mikil eftirspurn myndast þá mun Flugfélagið Ernir fljúga aukaflug 29.júní til og frá Bíldudal. Farið yrði í kringum hádegi en nánari tímasetning yrði auglýst síðar.

Eingöngu verður skráð niður í þessi flug með því að senda e-mail á  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . Fólk verður sett á biðlista og ef lágmarksþáttaka næst verður það tilkynnt með minnst viku fyrirvar

Bíldudalskallar hittast á Kænunni laugardaginn 27. apríl kl 10:00!

Bíldudalskallar hittast á Kænunni laugardaginn 27. apríl kl 10:00!
Garðar Sigþórsson eldisstjóri kynnir seiðaeldi Arnarlax í máli og myndum, fer yfir ferlið og stöðu seiða Arnarlax í dag. Allir velkomnir!!

Heiðra minningu Péturs Brynjólfssonar

Húni II á siglingu

Hollvinir Húna II. hafa skipulagt hringferð um landið í sumar. Þessi ferð er m.a farin í tilefni þess að 50 ár eru síðan báturinn var sjósettur hjá Skipasmíðastöð KEA á Akureyri.Jafnframt eru hollvinirHúna II. að hvetja til uppbyggingar á strandlífi og strandmenningu í bæjum og þorpum við sjávarsíðuna.

Lagt verður af stað þann 11. maí frá Akureyri, farið austur um land til Vestmannaeyja, þá til Reykjavíkur og þaðan til Bíldudals. Þeir verða væntanlega á Bíldudal að kvöldi 19. maí, sem er hvítasunnudagur. Þar gista þeir og fara þaðan til Þingeyrar og svo til Ísafjarðar. Með því að fara inn á Bíldudal vilja þeir heiðra minningu Péturs Brynjólfssonar, en hann lést 7. júní s.l.

Pétur Brynjólfsson var einn af þeim sem kom að smíði þessa glæsilega tréskips. Þegar skipið var síðar gert upp, til þess hlutverks sem það nú gegnir, fékk Pétur Brynjólfsson einn naglanna sem skipasmiðirnir notuðu í upphafi til minja um smíðina. Pétur Pétursson, sonur hans varðveitir nú þennan risanagla.

Sjá heimasíðu hollvina Húna II. http://www.huni.muna.is/forsida/

Þormóðsslyssins minnst

Hlusta á messu: 

 

Dagatal

Maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Vefmyndavél

Bildudalur

Notandi:gestur
ekkert lykilorð