Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
arnfirdingur.is og Arnfirðingur
  - Vefurinn og blaðið
[09.10.2003]

Dregið hefur úr uppfærslum eins og margir lesendur vefsins hafa þegar áttað sig á.

Nú í um ár hefur vefnum verið haldið úti í sjálfboðavinnu af vefstjóranum Helga Hjálmtýssyni, Magnúsi B. Óskarssyni og fjölmörgum öðrum sem sent hafa inn efni til birtingar. Arnfirðingafélagið kann þeim öllum bestu þakkir fyrir framtakið og þann velvilja sem félagið hefur notið af þeirra hálfu og mun vonandi njóta áfram. 

Arnfirðingafélagið er nú að kanna hvort ekki sé grundvöllur fyrir því að setja vefinn upp í kerfi, vefumsjónarkerfi sem einfalda myndi innsetningu efnis og þar af leiðandi gætu fleiri komið að rekstri vefsins. Félagið biður því lesendur um að sýna þolinmæði þar til viðunandi lausn hefur fundist á rekstrarformi vefsins.

Arnfirðingur - Sannleikurinn  mun gera yður frjálsa
Lesendur geta hins vegar glaðst yfir því að nú er hægt að lesa gamla góða Arnfirðing á vefnum. Arnfirðingur var blað sem gefið var út af Pétri Thorsteinssyni undir ritstjórn Þorsteins Erlingssonar. Blaðið kom út árin 1901-1903 og var hluti þess prentaður á Bíldudal í prentsmiðju Péturs.

Uppsetning þess á vefnum er hluti af VESTNORD. VESTNORD er stafrænt bókasafn þar sem veittur er aðgangur að þúsundum myndaðra blaðsíðna á stafrænu formi af þeim prentaða menningararfi sem varðveittur er í blöðum og tímaritum frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Aðgangur er öllum heimill og stuðst er við nýjustu tækni í geymslu og miðlun upplýsinga. Á Íslandi er unnið er að því að setja upp á vefnum íslensk blöð og tímarit sem voru prentuð fyrir 1920.

Setja verður upp sérstakan DjVu forritsbút í vafranum áður en hægt er að skoða blaðið.

Uppsetning blaðsins er á slóðinni:
http://www.timarit.is/common/titlebrowse.php?t_id=300121&lang=1

Stjórn Arnfirðingafélagsins

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is