Verðlaunin á góðum stað
- Safnað fyrir skáp undir verðlaunagripi
[24.09.2003]
Fyrrum félagar í ÍFB hafa ákveðið að safna fyrir veglegum
skáp undir verðlaunagripi félagsins.

Nýja íþróttahúsið á Bíldudal
Skápurinn mun standa á góðum stað í hinu langþráða íþróttahúsi en bygging þess er vel á veg komin og er nú unnið að
lokafrágangi.
Í verðlauagripaskápnum verða varðveittir þeir verðlaunagripir sem ÍFB hefur unnið til í gegnum tíðina sem og ýmsar myndir og munir er tengjast sögu félagsins. Stefnt er að því að afhenda skápinn formlega við vígslu hússins í næsta mánuði.
Velunnurum félagsins er bent á að opnaður hefur verið reikningur í Sparisjóði Vestfjarða þar sem hægt er að leggja málefninu lið, númerið er 1118-05-387. Skápurinn kostar kr. 150.000 og ef eitthvað safnast umfram þá upphæð munu þeir fjármunir renna til íþróttafélagsins.
Frétt Þórarinn Hannesson ( tot@sigloskoli.is
)
Mynd Óskar Björnsson ( millivegur@snerpa.is
)
Til baka
|