Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Vesturbyggð, Tálknafjörður og Ísafjarðarbær í eina sæng?
  - Tenging með hraðferju yfir Arnarfjörð
[10.09.2003]

Á Fjórðungsþingi Vestfirðinga kom fram tillaga um að kanna sameiningu Vesturbyggðar, Tálknafjarðarhrepps og Ísafjarðarbæjar í eitt sveitarfélag.


Auðkúla við Arnarfjörð

Finnur Pétursson frá Tálknafirði lagði fram tillöguna á þinginu sem haldið var í Reykjanesi um síðustu helgi.

Ein af forsendum slíkrar sameiningar verði tenging með hraðferju yfir Arnarfjörð milli Bíldudals og Auðkúlu ásamt jarðgöngum undir Hrafnseyrarheiði.

Aðspurður sagðist Finnur með tillögunni vera að reyna að opna umræður um þá möguleika sem gætu verið til staðar til að styrkja byggð á Vestfjörðum. Segir hann að samkvæmt ákvörðun stjórnvalda sé talið að menn hafi tíma til ársins 2005 til frjálsra sameininga en síðan viti enginn hvað taki við. Því þurfi menn að vera framsýnir og kanna hvað framkvæmanlegt er.

Hann telur íbúa á suðurfjörðum hafa mikinn áhuga á að sækja þjónustu á norðursvæði Vestfjarða. Meiri áhuga en fólk geri sér grein fyrir þar nyrðra. Hann telur að ef þessar hugmyndir reynist færar gæti verið um tveggja tíma ferðarlag frá Vesturbyggð til Ísafjarðar. Tillaga hlaut nokkra umræðu og var að endingu samþykkt að vísa henni til stjórnar sambandsins. 

Frétt bb.is
Mynd Magnús B. Óskarsson ( maggi@12og3.is )

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is