Bílddælir vilja fá prest sem fyrst
- Senda biskup bréf með undirskriftalista
[07.09.2003]
Bílddælingar óttast að til standi að leggja Bíldudalsprestakall niður og sameina það öðru kalli.

Bíldudalskirkja
Engin prestur hefur setið á Bíldudal nú í rúmt ár og hefur kallinu verið þjónað frá Tálknafirði. Á Tálknafirði hefur ekki setið prestur fyrr en nú á allra seinustu árum í nýju prestakalli.
Í Barðarstrandarprófastsdæmi eru nú þessi prestaköll:
- Bíldudalsprestakall
- Patreksfjarðarprestakall
- Reykhólaprestakall
- Tálknafjarðarprestakall
Íbúar á Bíldudal hafa sent Biskupsstofu bréf með undirskriftum fjölmargra íbúa sem ætlað er að vekja athygli biskups Íslands á málefnum Bílddælinga með von um úrbætur. Bréfið hljóðar svo:
„Við íbúar á Bíldudal sendum hér með undirskriftalista með nöfnum flestra þeirra sem hér búa. Viljum við með þessu bréfi vekja athygli ykkar á að nú sem aldrei fyrr er einlæg ósk okkar að hingað komi prestur sem fyrst. Það er dapurlegt að núna þegar útlit er með svartasta móti í atvinnumálum okkar hér þá sé rætt um að leggja Bíldudalsprestakall niður eða sameina það öðru. Hafi einhverntíma verið þörf á presti þá er það nú. Það er einlæg von okkar að við þessari beiðni verði brugðist hið fyrsta.“
Heyrst hefur að sameina ætti Bíldudalsprestakall Tálknafjarðarprestakalli en lítill áhugi er
fyrir því á Bíldudal og finnst sumum að ef sameina ætti þá væri eðlilegra að sameina Patreksfjarðar- og Bíldudalsprestaköll í ljósi þess að Bíldudalur og Patreksfjörður eru í
Vesturbyggð sem
Tálknfirðingar kusu að standa utan
við.
Mikil og heit umræða hefur átt sér stað meðal íbúa á
Bíldudal um þessi mál enda verða senn liðin hundrað ár frá því
kirkja Bílddælinga var vígð 2. desember árið 1906.
Til baka
|