Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Sjaldgæf sjón á Bíldudalsvogi
  - Skemmtisnekkjan Turmoil frá Suður-Afríku á voginum
[18.08.2003]

Sjaldgæf sjón blasti við Bílddælingum á laugardagsmorgun er þeir fóru á stjá.

Kvöldið áður kom inn á voginn skemmtisnekkjan Turmoil, glæsilegt skip frá Suður-Afríku, líklega um 500 tonn að stærð. 

Um kl. 10 lenti síðan sjóflugvél á sjónum og renndi sér að skipinu. Er þar um nokkuð merkan viðburð að ræða því sjóflugvél hefur líklega ekki lent á Bíldudalsvogi síðan um 1960 en þá lögðust samgöngum með þeim hætti af. 

Farið var út að skipinu og að sögn skipverja er skipið á leið norður með landi og síðan til Grænlands. Farþegar og áhöfn ætluðu að njóta veðurblíðunnar um sinn á Bíldudalsvogi sem skartaði sínu fegursta.

Frétt og myndir Jón Þórðarsson ( jth@snerpa.is )

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is