Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Hemmi Gunn kynningarstjóri
  - Vesfirska forlagið á Hrafnseyri
[07.08.2003]

Vestfirska forlagið á Hrafnseyri hefur ráðið Hermann Gunnarsson sem kynningar-og markaðsstjóra. 

Mun hann hafa umsjón með öllu kynningarstarfi forlagsins, auk þess sem hann mun sjá um nýstofnaðan bókaklúbb sem ber nafnið Bókaklúbbur Hemma Gunn og Vestfirska forlagsins.

Hemma Gunn þarf ekki að kynna fyrir landsmönnum. Hann hefur starfað mikið við sjónvarp og útvarp og er skemmst að minnast sjónvarpsþáttanna Á tali hjá Hemma Gunn, sem slógu öll áhorfsmet. Auk þess var hann landsþekktur íþróttamaður á árum áður. Þá hefur hann skrifað þrjár bækur sjálfur og er þekktur sem skemmtikraftur. Hemmi, sem er af vestfirskum ættum, hefur dvalist erlendis um skeið, en er nú aftur kominn heim í heiðardalinn.

Sem kunnugt er sérhæfir Vestfirska forlagið sig í útgáfu á vestfirsku efni undir samheitinu Bækurnar að vestan, þar sem fjallað er um Vestfirði og Vestfirðinga í blíðu og stríðu. Hefur bókaútgáfa forlagsins farið vaxandi með hverju árinu.

Á haustmánuðum munu meðal annars koma út hjá forlaginu bækur eins og 

  • Frá Bjargtöngum að Djúpi, 6. bindi, 
  • 101 ný vestfirsk þjóðsaga, 6. bók og 
  • Mannlíf og saga fyrir vestan, 13. hefti. 

Eru þessir bókaflokkar orðnir fastir punktar í bókaskápum Vestfirðinga og margra annarra landsmanna. Þá eru væntanlegar frá Vestfirska forlaginu æviminningar séra Baldurs Vilhelmssonar í Vatnsfirði, sem Hlynur Þór Magnússon, ritstjóri á Ísafirði, færir í letur.

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is