Heimsmeistari í hestaíþróttum
- Fyrsta gull Íslendinga á heimsmeistaramótinu í Danmörku
[31.07.2003]
Daníel Ingi Smárason náði fyrsta gulli Íslendinga á
heimsmeistaramótinu í Danmörku.

Sandfjaran í Hvestu í Arnarfirði
Daníel Ingi á Tyson frá Búlandi varð efstur í flokki ungmenna í forkeppni fjórgangsins á heimsmeistaramóti íslenskra hesta í Herning í dag.
Ungmennaflokkurinn keppir aðeins í forkeppninni og þar fengu þeir Daníel og Tyson einkunnina 7,10 og unnu þar með fyrstu gullverðlaun Íslendinga á mótinu. Daníel er sonur Elínar Bjarnadóttur frá Hvestu.
Til baka
|