Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Vestfirðir heilla mig
  - Myndlistarsýning á Hrafnseyri
[28.07.2003]

Kristín Þorkelsdóttir, myndlistarmaður, sýnir í sumar 24 vatnslitamyndir í Burstabæ Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri.


Burstabærinn á Hrafnseyri við Arnarfjörð

Sú venja hefur skapast að hafa þar sýningar ýmissa listamanna á sumrin. Sýningu sína kallar Kristín Myndir að vestan

Í eftirfarandi texta gerir hún grein fyrir tilfinningu sinni fyrir Vestfjörðum og myndunum sem hún sýnir, sem allar eiga uppruna sinn hér vestra. 

Vestfirðir heilla mig
Fjaran, sjávarflöturinn og fjarðalognið. Klappirnar, þanglitirnir og æðurin með unga sína. Birtan er mjúk og heillandi, þökk sé speglinum sem umlykur svæðið og endurkastar henni á björgin, fjallshlíðarnar og brúnaþunga fjallgarðana.

Gróðursældin er í fjarðabotnunum og næðingurinn á annnesjunum, og
þaðan koma veðurfréttir sem ekkert er að marka.

Við ökum yfir heiði og stoppum niðri í firði og mér finnst það gott. Við endurtökum þetta oft því firðirnir eru margir og flottir og ég vil ofaní fjörð í sæluvist fjarðalognsins og mála myndir mínar þar.

Eftir langan tíma og margar Vestfjarðaferðir kemur að því að samferðamaður minn vill breyta atferli okkar:

Það er logn uppá heiðum. Útsýni. Gróðurvinjar. Heiðavötn. Og ótrúleg býsn af grjóti sem er svo gamalt að það er hætt að segja frá því að við séum stödd í hrauni.

Heiðarnar heilla og við látum okkur detta í hug að sofa þar uppi og myndverkast. Við stöldrum við og njótum þessa einstæða umhverfis; erum ein með sjálfum okkur og meðtökum gjafir náttúrunnar og nýjar myndir verða til.

Og enn getur ferðamaðurinn fundið dýrmætt útskot uppi á heiðum og niðri í fjörðum sem sloppið hefur við uppbyggilega starfsemi vegagerðarinnar.

Ég vona sannarlega að útskotin verði aldrei aflögð vestur á fjörðum eins og alltof víða hefur gerst á landinu okkar; þess verði gætt við vegauppbyggingu að mögulegt sé að komast á vegaslóðana og gömlu vegina, þar getur ferðamaður á bíl komist í næði, notið þessa einstæða landssvæðis og staldrað við án þess að setja sig og aðra í lífshættu á þjóðveginum.

Nú er komið að mér
að sýna lit ...

... og endurgjalda gjöfular stundir á aflögðum vegaslóðum á Vestfjörðum.

Í boði Hrafnseyrarnefndar opna ég sýninguna Myndir að vestan og sýni 24 vatnslitamyndir á Hrafnseyri. 

Ég vona að sem flestir Vestfirðingar skoði hana í sumar og ferðafólk líti við á kaffistofunni í burstabænum og njóti myndanna um leið og kaffisopans.

Hér kemur hluti af sýningaskránni:

  1. Veturlandafjall, máluð frá Selárdal í júní 2002, lokið 2003
  2. Þokukennt faðmlag - Arnarfjarðarrisarnir, máluð í Baulhúsaskriðum í júní 2002
  3. Á Dynjandisheiði, máluð á Dynjandisheiði í júní 2002
  4. Vestfirsku Alparnir, máluð við Vaðal í Arnarfirði í júní 2002
  5. Síðdegisfjara í Arnarfirði, máluð suð-vestan til í Arnarfirði í júní 2002
  6. Jónsmessunæturflug blikanna, máluð í Selárdal á Jónsmessunótt 2002
  7. Jónsmessunæturdraumur, máluð í Selárdal í Arnarirði í júní 2002
  8. Sumar í fjörunni, máluð við Sellátra í Tálknafirði í júní 2002
  9. Sumardagur í Tálknafirði, máluð við Sellátra í Tálknafirði í júní 2002
  10. Á melnum, máluð í Hænuvík í júní 2002
  11. Frá Vestfjörðum, Tálkni, máluð í Hænuvík við Patreksfjörð í júní 2002
  12. Í fjöruborðinu, máluð við Patreksfjörð í júní 2002
  13. Tálkni og kvöldblíðan... , máluð á Sellátranesi í Patreksfirði í júní 2002
  14. Vor í Bolungarvík, máluð í Bolungarvík í júní 2000
  15. Útverðir í Einarslóni, máluð við Einarslón í júlí 1999
  16. Kaldbakshorn, máluð í Kaldbaksvík á Ströndum í ágúst 1997
  17. Í blárri blíðu við Breiðafjörð, máluð við Kjálkafjörð í júlí 1997
  18. ... með björgum fram, máluð í Djúpafirði, við Barma í júlí 1997
  19. Kvöld í fjörunni, máluð á Hallsteinsnesi í Djúpafirði,í júlí 1997
  20. Pensladans á Brekkufjalli, máluð í Djúpafirði í júlí 1997
  21. Í skrúðgarði fjörunnar, máluð í Guðlaugsvík á StrönduM í júlí 1997
  22. Fosshlíðar við Kaldalón, máluð við Kaldalón í ágúst 1996
  23. Þokunni léttir, máluð á Boða í Suðurfjörðum í júlí 1992
  24. Við Hvestu, máluð í Arnarfirði í júlí 1992

Allar myndirnar eru til sölu á Hrafnseyri.

Frétt Hallgrímur Sveinsson ( jons@snerpa.is )

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is