Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Laugardagurinn á Bíldudals grænum...
  - Hreint frábær dagur í frábæru veðri
[24.07.2003]

Sjáðu einnig myndir!

Dagskráin hófst að nýju á laugardeginum með rútuferð út í Ketildali undir leiðsögn Arnar Gíslasonar. 


Stangarstökk á Völumótinu

Síðan var Völumótið sett frammi á velli þar sem hressir krakkar gátu prófað stangarstökk undir leiðsögn Völu Flosadóttur.

Niðri í þorpi var sölutjald opnað þar sem boðinn var ýmis varningur, allt frá sælgæti yfir í listmuni. Hoppukastalar þutu upp, börnin lögðu stund á þrautir og leiki og rækjusjómenn buðu upp á nýveidda rækju sem soðin var á bryggjunni. 

Þrjár yngismeyjar stigu á svið og fluttu lag með Birgittu Haukdal og í gervi hennar, og var vart annað að sjá en Birgitta væri sjálf á sviðinu að syngja.

Guðmundur Otri Sigurðsson Vestfjarðavíkingur reyndi sig við bryggjuhamarinn og stóð fyrir áheitum til stuðnings fjölskyldu Arnórs Gíslasonar sem greindist með hvítblæði í upphafi ársins. Gátu gestir greitt fyrir hverja sekúndu sem Otri hélt hamrinum á lofti. Það reyndust vera 26 sekúndur og söfnuðust á annað hundrað þúsund krónur.


Spænsku matreiðslumennirnir og túlkurinn lýsa réttunum

Þá opnaði veitingastaðurinn Bíldudals Baccalà í samkomuhúsinu þar sem spænskir matreiðslumenn töfruðu fram suðræna saltfiskrétti með kvenfélagskonum.

Farið var í gönguferð um þorpið undir leiðsögn og er líða fór á daginn léku harmonikkuleikarar utan við sölutjaldið. 


Facon á sviði á ný eftir 35 ára hlé

Um kvöldið hófust svo hljómsveitatónleikar á útisviði sem sett hafði verið upp neðan við samkomuhússbrekkuna. Þar léku gamlar og nýjar hljómsveitir, Farfuglarnir stigu á svið, Græni bíllinn hans Garðars flutti lögin af nýja diskum, rokkgrúppan Kládíus með Sverri Garðarsson í broddi fylkingar lék lausum hala, Sem tók nokkur lög og Facon kom fram í fyrsta sinn í 35 ár. 

Jón Þórðarson setti upp útigrill framan við fiskvinnsluna og bauð hljómleikagestum upp á grillað sjávarfang og margir hátíðargesta supu Senjorinn, sérmerktan bjór sem í boði var í tilefni hátíðarinnar.


Söngvararnir Gísli Ægir Ágústsson og Jón Kr. Ólafsson

Hápunktur kvöldsins var þegar allir þeir sem komið höfðu fram á útisviðinu voru kallaðir upp á svið og sungu saman Ég er frjáls með þeim Facon-mönnum. Var ekki annað að sjá en að hver einn og einasti gestanna tæki undir fyrir framan sviðið. 

Græni bíllinn og Kládíus léku síðan nokkur lög inn í sumarnóttina.

Frétt Helgi Hjálmtýsson ( postholf@yahoo.com )

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is