Farfuglarnir á Bíldudals grænum...
- Hvergi auglýstir en spiluðu og spiluðu við góðar undirtektir
[16.07.2003]
Á Bíldudals grænum... kom fram í fyrsta sinn ný hljómsveit skipuð valinkunnum Bílddælum.

Farfuglarnir skemmta sér og öðrum
Hljómsveitin hlaut nafn sitt rétt í þann mund sem hátíðin hófst og kallast Farfuglarnir.
Farfuglarnir léku víða á hátíðinni en voru þó hvergi auglýstir í dagskrá. Hljómsveitin
kom einungis fram þá og þegar meðlimum hennar hentaði enda ánægja og leikgleði höfð í fyrirrúmi. Á stefnuskrá sveitarinnar er að hvar sem tveir eða fleiri komi saman þar séu Farfuglarnir tilbúnir að flytja sinn óð.
Það verður gaman að fylgjast með þessari stórskemmtilegu sveit og Arnfirðingur.is óskar henni til hamingju með vel
heppnaðar uppákomur á hátíðinni!
Frétt og mynd Helgi Hjálmtýsson ( postholf@yahoo.com
)
Til baka
|