Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Setningarathöfn sumarhátíðarinnar
  - Fjölmargir voru viðstaddir þegar fáninn var dreginn að húni
[07.07.2003]

Sjáðu einnig myndir!

Arnfirðingahátíðin Bíldudals grænar... var sett við hátíðalega athöfn á Tungunni föstudaginn 27. júní.


Valdimar B. Ottósson dregur upp fánann
Mynd Magnús B. Óskarsson

Við þetta tækifæri var reist nýtt mastur við minnismerkið um seglskipið Gyðu sem fórst í Arnarfirði með allri áhöfn.

Fjölmargir voru við athöfnina sem Valdimar Gunnarsson formaður Arnfirðingafélagsins stjórnaði. Kolbrún Pálsdóttir bæjarfulltrúi bauð gesti velkomna fyrir hönd Vesturbyggðar og Pétur Bjarnason flutti hátíðarræðu.

Jón Þórðarson stjórnaði vígslu nýja mastursins, Vala Flosadóttir bar fánann, sem hefur verið flaggað víða á Norðurlöndum, og Valdimar B. Ottósson dró hann að húni. Um leið og fáninn kom að húni datt á dúnalogn sem stóð alla helgina.


Fáninn kominn að húni
Mynd Helgi Hjálmtýsson

Eftir heisingu fánans flutti Græni bíllinn hans Garðars lagið Bíldudalur, bærinn minn eftir Þórarinn Hannesson.

Nýja mastrið sómir sér vel en það er af bátnum Katrínu BA, áður Gísla Júll frá Ísafirði, en báturinn var úreltur um 1973 og brenndur í Fossfirði. Mastrið hefur verið í geymslu síðan þá, það er ellefu metra hátt, líkt og gamla mastrið sem kom upp í trolli í Arnarfirði og er talið vera af Gyðu. Það er sjómannadagsráð sem ber kostnað af uppsetningu nýja mastursins.

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is