Um 1200 gestir komu á Bíldudals grćnar...
- Sumarhátíđin heppnađist
sérlega vel
[03.07.2003]
Arnfirđingahátíđin Bíldudals grćnar... fór fram nú um helgina á Bíldudal.

Kolbrún Pálsdóttir fulltrúi í bćjarstjórn
býđur gesti velkomna fyrir hönd Vesturbyggđar
Um 1.200 gestir voru á hátíđinni ţegar mest var um ađ vera á laugardeginum. Fór hátíđin vel fram ađ öllu leyti og ríkti almenn ánćgja međal gesta.
Dagskrá var fjölbreytt og var ađ öllu leyti í höndum Arnfirđinga sem fengu ađstođ spćnskra matreiđslumanna er komu alla leiđ frá Spáni til ađ elda Bíldudals Baccalŕ - saltfiskrétti eldađa ađ spćnskum hćtti. Bíldudals Baccalŕ er líklega elsta eđa međ elstu vörumerkjum Íslandssögunar.
Völumót var sett í fyrsta sinn á laugardeginum - skemmtilegt krakkamót ţar sem krakkar fengu ađ reyna sig í íţróttum undir leiđsögn Völu Flosadóttur afrekskonu í íţróttum.
Formleg dagskrá stóđ í ţrjá daga og hófst međ hátíđlegri setningu á Tungunni á Bíldudal ţar sem nýtt fánamastur var vígt og rćđur fluttar.
Á dagskrá voru skrímslaferđir um Arnarfjörđ, skođunarferđir út í Ketildali, skipulagđar gönguferđir, sölubásar, hoppukastalar og ţrautir, leiksýningar, gestum bođiđ ađ smakka nýveidda rćkju úr Arnarfirđi sem sođin var á bryggjusporđinum, kraftasýning, veiđikeppni, myndlistasýning, hátíđarmessa í Bíldudalskirkju og sýning á munum frá ţeim tíma er heiđurshjónin Ásthildur Guđmundsdóttir og Péturs Jens Thorsteinsson bjuggu á Bíldudal.
Laugadeginum lauk svo međ harmonikkuleik og hljómsveitatónleikum ţar sem fram komu bílddćlskar hljómsveitir međ Facon í broddi fylkingar.
Fyrir hátíđinni stóđu Arnfirđingafélagiđ í Reykjavík og félagasamtök á Bíldudal.
Til baka
|