Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Sumarhátíðin á Bíldudal
  - Margir gestir þegar komnir
[25.06.2003]

Margir gestir eru þegar komnir til Bíldudals og góð stemning að myndast.


Jón Kr. Ólafsson söngvari Facon kominn í gírinn

Útlit er fyrir að verðrið verði gott en í dag eru sólarglennur, stafalogn og 18 stiga hiti. 

Endanleg dagskrá liggur fyrir. Gólfmót hefst á fimmtudag kl. 18:00.

Gönguferð verður út á Otradalsfjall kl. 13:00 á föstudag, göngugarpar hittist fyrir ofan Strengfell upp af Bíldudal. Ýmsar sýningar opna í barnaskólanum kl. 16 og fyrsta skrímslaferðin farin. Kl. 20 á föstudaginn verður hátíðin formlega sett. Um kvöldið stendur leikfélagið Baldur fyrir skemmtun og vísnavinir koma fram.

Á laugardagsmorgun kl. 10 verður farið í fyrstu rútuferðina út í Ketildali og Völumót hefst kl. 11. Sölutjald opnar kl. 14, hoppukastali, þrautir og leikir verða fyrir börnin, aflraunir sýndar þar sem bryggjuhamarinn tekst á loft, kæjakar leigðir út og hægt verður að smakka nýveidda rækju á bryggjusporðinum. 

Veitingastaðurinn Bíldudals Baccalà opnar kl. 15 þar sem spænskir matreiðslumenn töfra fram ljúffenga saltfiskrétti að spænskum hætti. Þá verður einnig farið í gönguferð um þorpið. Kl. 20 hefst harmonikkuleikur við hátíðartjald og og kl. 21 hefjast hljómsveitartónleikar þar sem gamlar og nýjar hljómsveitir koma fram, þar á meðal hljómsveitin Facon frá Bíldudal sem kemur nú fram í fyrsta sinn síðan á sjöunda áratugnum. 

Kl. 11 á sunnudag verður messa í Bíldudalskirkju. Veiðikeppni verður kl. 14 og hátíðinni verður formlega slitið kl. 18.

Frítt er inn á svæðið en greiða þarf fyrir aðgang að einstökum liðum í dagskrá. 

Sjá nánari tímasetningar og útfærslu dagskrár

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is