Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Kalkþörungaverksmiðja á Bíldudal
  - Rekstur gæti hafist í ársbyrjun 2005
[21.06.2003]

Allar líkur eru á að kalkþörungaverksmiðja rísi í Arnarfirði næsta sumar. 


Bíldudalur - mynd Magnús B. Óskarsson

Fyrirtækið Björgun ehf. hefur sent erindi til bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Í erindinu er óskað eftir staðsetningu verksmiðjunnar á Bíldudal.

Björgun er samstarfsaðili írska kalkþörungafyrirtækisins Celtic Sea Minerals Ltd. og Íslenska kalkþörungafélagsins.

Í fundargerð 271. fundar bæjarráðs Veturbyggðar segir:

„Erindi frá Björgun ehf. /Celtic Sea Minerals Ltd. varðandi lóð ofl. fyrir kalkþörungaverksmiðju. Lóðarstærð þyrfti í upphafi að vera 12.500m2 en stækka í 17.000m2 eftir 4-5 ár. Staðsetning húss innan lóðar, viðlegukants ofl. mótist af og með lausn Siglingastofnunar. Ákvörðun á grundvelli endanlegrar hagkvæmniathugunar liggi fyrir á næstu vikum. „Verði ákveðið að hefja byggingaframkvæmdir er eðlilegt að gera ráð fyrir að lóðin þurfi að vera tilbúin í byrjun júní á næsta ári. Gert er ráð fyrir 5 – 6 mánaða framkvæmdatíma áður en rekstur geti hafist“ segir í erindi Björgunar/CSM Ltd. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti en telur tíma kominn á að Björgun/CSM kynni hugmyndir sínar fyrir Bílddælingum.“

Samkvæmt frétt Tíðis - www.patreksfjordur.is og fundargerð á www.vesturbyggd.is

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is