Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Rækjukvótinn 450 tonn í Arnarfirði
  - Var 650 tonn á síðustu vertíð
[10.06.2003]  

Samkvæmt stofnmati Hafró er rækjustofninn í Arnarfirði nú
svipaður og á liðnum vetri.

Um 650 tonn veiddust í Arnarfirði á síðustu vertíð. Kvendýravísitalan er einnig talin svipuð. Þriggja og fjögurra ára rækja er mest áberandi og mun veiðin fiskveiðiárið 2003-2004 að stórum hluta byggjast á þessum árgöngum. Hafró leggur til að upphafsafli verði 450 tonn.

Á síðustu vertíð lagði Hafró til að veidd yrðu 550 tonn af rækju í Arnarfirði en þegar leið á vertíðna var kvótinn aukinn í 650 tonn. 

Hafró leggur jafnframt til að hörpudiskveiðar verði ekki heimilaðar á fiskveiðiárinu.

Rækjukvóti síðustu vertíða

  • 2003/04 450 tonn
  • 2002/03 650 tonn
  • 2001/02 750 tonn
  • 2000/01 650 tonn
  • 1999/00 550 tonn
  • 1998/99 550 tonn
  • 1997/98 550 tonn

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is