Græni bíllinn gefur út disk
- Sex laga geisladiskur
[04.06.2003]
Í tilefni af sumarhátíðinni hefur hin fornfræga hljómsveit Græni bíllinn hans Garðars brugðið sér í hljóðver og tekið upp sex lög.

Græni bíllinn sjálfur með hljómsveit og bílstjóra
Fjögur þessara laga eru eftir meðlimi hljómsveitarinnar, þá Viðar Ástvaldsson og Þórarinn Hannesson, en einnig hljóðritaði hljómsveitin hin fornfrægu lög Inn í Otradal, eftir Ottó Valdimarsson og
Senjorinn eftir Jörund Garðarsson við texta Hafliða
Magnússonar. Hafliði á einnig texta við eitt laga Viðars.
Geisladiskurinn var hljóðritaður í Upptökuheimilinu Geimsteini í Keflavík en þar ræður Rúnar Júlíusson ríkjum. Að sögn meðlima Græna bílsins er aðstaða hjá Rúnari öll hin fullkomnasta en hljóðritun tók eingöngu tvo daga enda vanir menn bæði á tökkum og hljóðfærum. Áætlað er að geisladiskurinn komi formlega út á
Arnfirðingahátíðinni í lok júní.
Hér er eitt lagana sex - Bíldudalur, bærinn minn
(3.5 MB mp3) eftir Þórarinn
Hannesson. Hægri smelltu á heiti lagsins og veldu Save
Target As... til að vista það niður á tölvunni þinni og
spila. Sjáðu einnig textann
við lagið.
Til baka
|