Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Arnór greindist með hvítblæði
  - Hefur staðið sig eins og hetja
[06.05.2003]  

Arnór Gíslason sem greindist með hvítblæði í upphafi árs hóf stranga lyfjameðferð þann 19. mars og mun sú meðferð standa yfir í tvö ár.


Arnór með pabba og mömmu

Meðferðin hefur gengið vel en hún er erfið og reynir mikið á Arnór litla sem þó hefur staðið sig eins og hetja. 

Upphaf lyfjameðferðarinnar var honum mikil þolraun og setja þurfti Arnór í nýrnavél þar sem nýrun þoldu illa álagið. Var honum haldið sofandi í fimm sólarhringa í nýrnavélinni. Við svona sterka lyfjameðferð veikist ónæmiskerfi líkamans þar sem hvítum blóðkornum fækkar og hefur Arnór þurft að fara í einangrun þegar þannig stendur á til að forðast allt utanaðkomandi smit.

Þegar mig bar að garði var Arnór heima hjá foreldrum sínum, í íbúð langveikra barna í Gautlandi, og var að lita fallega mynd sem hann hafði verið að teikna.


Nærmynd af fallegu Mix flöskunni hans Arnórs

Arnór saknar vina sinna og bekkjasystkina á Bíldudal og langaði til að skila kærri kveðju til allra krakkanna, hann hlakkar til að komast aftur heim.

Gísli og Lára eru bæði frá vinnu vegna veikinda sonar síns sem þarf að vera í Reykjavík meðan á meðferðinni stendur. Vilja þau koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem stutt hafa við bakið á þeim vegna veikinda Arnórs. 

Félagasamtök á Bíldudal héldu skemmtikvöld og bingó í Baldurshaga til styrktar fjölskyldunni og krakkar úr 10. bekk Bíldudalsskóla söfnuðu einnig með bingói.

Opnaður hefur verið reikningur í Sparisjóði Vestfirðinga á Bíldudal þar sem tekið er við framlögum þeirra sem vilja veita fjölskyldunni stuðning sinn.

Númer reikningsins er: 1118 - 05 - 351, kt: 280462-6599

Frétt og myndir: Magnús Óskarsson ( maggi@12og3.is )

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is