Svartfuglsveiðar í Arnarfirði
- Bjart og fallegt veður
[03.05.2003]
Arnarfjörður hefur verið mikil matarkista í gegnum aldirnar, bæði hvað varðar fisk og fugla og fært mörgum björg í bú.

Skipstjórinn Ottó Valdimarsson við stýrið
Undirritaður brá sér á svartfuglaveiðar, laugardaginn fyrir páska með þeim feðgum Ottó Valdimarssyni, Valdimar Ottóssyni og Fannari Ottóssyni, einnig var Guðmundur S. Guðjónsson, tengdafaðir Valdimars, með í för. Allir eru þeir miklar skyttur en kunna sér hóf í veiðimennskunni og láta sér nægja að ná í soðið fyrir fjölskyldur
sínar.
Veðrið var bjart og fallegt þennan dag en töluverð alda sem gerði skyttunun stundum erfitt fyrir og dró talsvert úr skotanýtingunni. Fuglinn var frekar
dreifður um fjörðinn, ekki í stórum hópum og þurfti því að sigla vítt og breitt um fjörðinn til þess að ná í soðið fyrir mannskapinn.

Lagt af stað á mótorbátnum Pétri Þór, Bíldudalur í baksýn

Skytturnar þrjár, Guðmundur S. Guðjónsson, Fannar Ottósson og Valdimar
Ottósson

Veiðimenn í með fugla í sigtinu

Guðmundur mundar háfinn

Skimað eftir fugli

Á landleiðinni var gert að fuglinum og aflanum skipt á milli manna
Aflinn þennan dag var um sextíu fuglar. Skytturnar voru ánægðar með sinn
hlut og undirritaður tók fjölda ljósmynda úr Arnarfirði sem nýtast örugglega á heimasíðu Arnfirðingafélagsins á næstunni. Nokkrar myndir úr veiðiferðinni prýða þessara grein.
Kveðja,
Magnús B. Óskarsson
maggi@12og3.is
Til baka
|