Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Efling ferðaþjónustu á landsbyggðinni
  - Verkefnið hlunnindabúskapur og sjósókn á sunnanverðum Vestfjörðum
[27.04.2003]  

Fyrir páska undirrituðu Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra og Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, samkomulag um verkefni í ferðaþjónustu á landsbyggðinni. 

Samkomulagið er til þriggja ára og gerir ráð fyrir að veitt verði 22 milljónum króna til sex verkefna á þessu ári en jafnframt munu ráðherrarnir beita sér fyrir því að til sameiginlegra ferðaþjónustuverkefna verði veitt 40 milljónum á ári næstu tvö ár.

Látrabjarg
Látrabjarg

Eitt af verkefnunum sex sem hljóta styrk í ár er verkefnið hlunnindabúskapur og sjósókn á sunnanverðum Vestfjörðum sem hefur verið í undirbúningi á Reykhólum síðan 1999. Verkefnið er þríþætt með því að lögð er áhersla á nýtingu eyjanna á Breiðafirði, Látrabjarg og siglinga- og verleiðir. 

Verkefnið fór í gang af krafti sumarið 2001 með stofnun upplýsinga- og fræðsluseturs. Sumarið 2002 var síðan sett upp hlunnindasýning. Þar er fjallað um hlunnindabúskap á Breiðafjarðarsvæðinu og einkum nýtingu hlunninda eins og æðardúns og sels. Samstarf við Minjasafnið á Hnjóti er þegar hafið og er ætlunin að vinna að frekari þróun þess og hlunnindasýningarinnar innan ramma verkefnisins.

Jafnframt er ætlunin að beina athyglinni að Látrabjargi, fuglalífi þar og nytjum af því, enda var bjargið mikil matarkista fyrr á öldum og hlunnindi þar skiptu miklu máli fyrir sjálfsþurftarbúskap á nærliggjandi svæðum. Leitað verður leiða til að nýta sérstöðu Látrabjargs, fuglalíf þar og fuglanytjar í ferðaþjónustu og menningarstarfi.

Í þriðja þætti verkefnisins verður áhersla lögð á að kynna og endurvekja ferðir um gamlar skreiða- og verleiðir um Breiðafjörð og nærliggjandi svæði. Þetta eru bæði gamlar siglingaleiðir um eyjarnar í Breiðafirði og leiðir að gömlu verstöðvunum á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum, auk gömlu landleiðanna á milli staða og fjórðunga. Söguleg áhersla í slíkum ferðum með ferðamenn verður lögð á sjálfsþurftartímann og þann hlunnindabúskap sem hefur einkennt þetta svæði stærstan hluta Íslandssögunnar. 

Markmiðið með ferðunum er að ferðamaðurinn upplifi við raunverulegar aðstæður kjör þess fólks, sem starfaði og bjó við hlunnindabúskap, og forðabúr náttúrunnar. Lögð er áhersla á að saman fari upplifun, fræðsla og áskorun við kjör náttúrunnar. Gert er ráð fyrir að þátturinn um ver- og siglingaleiðir taki þrjú ár og nái yfir allt frá rannsóknum og hönnun ferðaleiða til markaðsetningar á meðal ferðaþjónustuaðila. Unnið er að því að þessi þriðji þáttur verkefnisins verði hluti að sam-evrópsku verkefni um strandmenningu norður Evrópu.

Styrkinn hljóta Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða í samstarfi við Minjasafnið á Hnjóti, Reykhólahrepp og Vesturbyggð.

Mynd Vesturbyggd.is

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is