Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Gleðilegt sumar!
  - Sumarið komið á Bíldudal
[24.04.2003]  

Sumarið er komið samkvæmt almanakinu eftir mildan vetur og vonandi verður nú gott veður í sumar.

Hvernig til tekst með Arnfirðingahátíðina Bíldudals grænar... veltur að einhverju leyti á því hvernig veðrið verður um hátíðardagana en of snemmt er að geta sér til um það á þessari stundu.

Á liðnu sumri var ágætis veðurfar. Þó gekk rigningartíð yfir í seinni hluta júlímánaðar og ágústmánuður var ekki sérlega hlýr, en júní var aftur á móti til fyrirmyndar. 

Vestfirðingar sem starfa að ferðamálum telja margir hverjir að dregið hafi úr ferðum fólks um allt land allt vegna vætutíðarinnar í júlí, vilja sumir meina að Íslendingar veigri sér almennt við að ferðast þegar rignir, sérlega þeir sem nýti sér tjaldstæðin. Fjöldi gistinátta var þó svipaður síðasta sumar og árið þar á undan en nýting gistirýma ívið betri.

Mál manna er þó að ferðafólki á suðurfjörðum Vestfjarða hafi farið fjölgandi undanfarin sumur og ber að fagna því eins og sumrinu. 

Í fyrradag birtist grein eftir samgönguráðherra Sturlu Böðvarsson á Þingeyrarvefnum þar sem hann segir það trú sína að ferðaþjónustan „geti orðið stóriðja Vestfjarða, ásamt sjávarútvegi“ í umfjöllun um væntanleg jarðgöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is