|
|
|
|
|
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði?
Sendu tölvupóst
til ritstjórnar vefsins. |
|
|
|
|
|
|
|
|
Tenging norður- og suðursvæða Vestfjarða
- Rekstur hraðferju og
jarðgöng
[13.04.2003]
Hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps hefur einróma samþykkt að óska eftir því við samgönguráðherra að Vegagerðin geri forkönnun á rekstri hraðferju yfir Arnarfjörð milli Bíldudals og Auðkúlu.
Jafnframt verði kannað hvaða áhrif jarðgöng undir Hrafnseyrarheiði ásamt áðurnefndri ferju hefðu á uppbyggingu Ísafjarðar sem byggðakjarna fyrir Vestfirði og möguleika íbúa Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps til þess að sækja þjónustu norður.
Samþykktinni fylgir eftir farandi bókun í geraðbók hreppsins:
„Um nokkurn tíma hefur verið rætt og ritað um tengingu svokallaðra norður- og suðursvæða Vestfjarða. Hefur þar verið horft til jarðganga úr botni Dýrafjarðar yfir að Rauðsstöðum í Borgarfirði og síðan uppbyggingu vegar um Dynjandisheiði. Lengra fram í tímann hafa menn horft til hugsanlegra jarðganga undir Dynjandisheiði úr Borgarfirði yfir í Vatnsfjörð.
Í ljósi þessara staðreynda má telja að tenging svæðanna með jarðgöngum undir Hrafnseyrarheiði og svokallaðri hraðferju milli Bíldudals og Auðkúlu (Hrafnseyrar) sé raunhæfur kostur. Með hraðferju yrði siglingartími milli Bíldudals og Auðkúlu u.þ.b. 8-15 mínútur. Ekki yrði gert ráð fyrir að fólk færi úr bílunum um borð í ferjunni. Slíkar ferjur eru víða í notkun, t.d. í Noregi á styttri leiðum, svo sem milli Kvanndal og Utne við Utnefjörð (innfjörður frá Harðangursfirði).
Með jarðgöngum undir Hrafnseyrarheiði væri ferðatími milli Patreksfjarðar og Ísafjarðar komin niður í um það bil 1 klst. og 20 mínútur. Þeim ferðatíma væri aldrei hægt að ná með landsamgöngum. Þá er vert að veita því athygli að ferðatími milli Bíldudals og Þingeyrar væri kominn niður fyrir 30 mínútur, sem gerði þessi byggðarlög að einu atvinnu- og þjónustusvæði.
Líkur eru á því að ekki þurfi að koma til dýr hafnarmannvirki á Auðkúlu, þar sem aðdýpi er þar mikið og líkur á því að steypt skábraut dygði þar. Að sögn kunnugra er sjó- og veðurlag á Bótinni niður undan Auðkúlu einstaklega gott og sjaldan „ólendandi“. Á Bíldudal þyrfti líklega ekjubrú. Hugsanlega mætti flytja brú, sem staðsett er á Arngerðareyri, á Bíldudal og þannig halda kostnaði við ferjuaðstöðu í lágmarki.“
Frétt: Tíðis - patreksfjordur.is
Til baka
|
|
|
|
|
|
|
|