Kalkþörungaverksmiðja í Arnarfirði
- Kærufrestur runninn út
[12.04.2003]
Frestur til að kæra umhverfismat Umhverfisstofnunar vegna kalkþörungaverksmiðju í Arnarfirði rann út
þann 9. apríl að því er fram kom á bb.is í vikunni.
Svæðisútvarp Vestfjarða greindi frá því að ekki væri vitað til þess að neinar athugasemdir hefðu borist.
Ennfremur kom fram á vef bb.is að unnið sé að úttekt á fýsileika framkvæmdarinnar og ætti niðurstaða að liggja fyrir í maí.
Jafnframt er áfram vitnað í svæðisútvarpið þar sem sagt
var að verkefnið, sem allt bendir til að geti orðið að veruleika, muni hafa í för með sér fólksfjölgun á Bíldudal og í nágrenni sem nemur allt að 35 manns.
Sjá einnig: Skipulagsstofnun fellst á kalkþörunganám
Til baka
|