Sjávarskrímsli á Vestfjörðum
- Skjaldbökuævintýrið á Hólmavík 1963
[07.04.2003]
Einn dagskrárliðurinn á Arnfirðingahátíðinni Bíldudals grænum...
er skrímslaferð um Arnarfjörðinn.

Einar Hansen og skjaldbakan
Í firðinum hafa dvalið mörg sæskrímsli og sögur um þau verða rifjaðar upp og kannski má sjá skrímslum bregða fyrir.
Af þessu tilefni er ekki úr vegi að rifja upp þann atburð er tveir feðgar sigldu fram á sæskjaldböku í Steingrímsfirði á Ströndum er þeir voru að koma úr róðri árið 1963. Þeir komu í hana króki og drógu til Hólmavíkur.
Uppi varð fótur og fit í Hólmavík og fljótlega komust heimamenn að þeirri niðurstöðu að um leðurskjaldböku væri að ræða –
dermochelys coriacea – heimsins stærstu og frumstæðustu tegund sæskjaldbakna sem venjulega lifir á suðrænni slóðum.
Skjaldbakan risavaxna reyndist vera um 375 kíló og lengdin var 2,03 metrar. Náttúrugripasafn Íslands keypti hana og var gerð afsteypa í Kaupmannahöfn og er hún varðveitt í Náttúrufræðistofnun Íslands og til sýnis í safninu.
Um þennan atburð má lesa nánar á vefnum www.strandir.is http://www.strandir.is/skjalda.htm
Til baka
|