Gegn einelti
- Sameinað átak gegn einelti á Tálknafirði og í Vesturbyggð
[04.04.2003]
Grunnskólinn á Tálknafirði og grunnskólar Vesturbyggðar hafa í vetur sameinast í átaki gegni einelti.

Afrakstur vinnu þemadagsins um einelti
Átakið hófst með því að skólarnir sendu sameiginlega einn kennara á fjögra daga námskeið sem fram fór í Reykholti í Borgarfirði. Þar voru samankomnir um 60 kennarar víðs vegar að af landinu. Á þessu námskeiði var farið kennurunum kynnt svonefnd Olweusar-áætlun gegn einelti. Eftir þessari áætlun hefur síðan verið unnið í skólunum í vetur.
Myndaður var rúmlega 20 manna stýrihópur á svæðinu en í honum voru, auk fulltrúa kennara, starfsfólks og stjórnenda skólanna, fulltrúar skólanefnda, foreldrafélaga og nemenda skólanna.
Áætlunin var kynnt foreldrum í haust og síðan var lögð könnun fyrir nemendur skólanna. Niðurstöður hennar voru kynntar stýrihópnum í febrúar. Þar kemur fram að einelti á sér því miður stað hér ekkert síður en annars staðar. Staðir þar sem einelti á sér helst stað eru búningsklefar og skólalóð, en aðrir hættulegir staðir eru gangar, skólastofa og leiðin heim úr skóla.
Leiðir til að sporna við einelti eru til og hefur vinnan miðast við að fylgja Olweusar-áætluninni sem er sú áætlun sem er hvað útbreiddust og viðurkennd af fagaðilum.
Í morgun horfðu nemendur allra bekkja á myndbönd þar sem fjallað er um, og talað við, einstaklinga sem hafa orðið fyrir einelti. Rætt var við nemendur um einelti og voru allir aðilar sammála um að einelti væri í raun víti og ætti alls ekki að eiga sér stað. Margir opnuðu sig í umræðunum og nokkrir sögðu frá reynslu sinni bæði sem gerendur og þolendur.
Einnig unnu nemendur skólans verkefni sem tengdist þessum umræðum og fólst í því að allir bjuggu sér til sinn "einstakling" úr pappír, mótuðu útlit hans og klæddu hann upp auk þess sem hver pappafígúra á sína þankabólu. Í bóluna skrifuðu nemendur eitthvað um það hvernig fólk á að koma fram við annað fólk. Afraksturinn má sjá á meðfylgjandi mynd.
Þess má samt geta að nemendur fyrsta bekkjar harðneituðu að skilja sína "einstaklinga" eftir úti í "Stóra skóla". Þau tóku þá með sér í sína stofu og ætla sér að flytja þá með sér um leið og þau flytja í nýju stofuna sína eftir páskana.
IK - talknafjordur.is
Til baka
|