Saltstorkin bros
- Framhald Togarasögu með tilbrigðum
eftir Hafliða Magnússon
[26.03.2003]
Í apríl kemur út hjá Vestfirska forlaginu bókin Saltstorkin bros eftir alþýðuhöfundinn Hafliða Magnússon frá Bíldudal, en Hafliða þarf ekki að kynna fyrir þeim sem lesið hafa
Bækurnar að vestan.
Saltstorkin bros er að nokkru leyti framhald Togarasögu með tilbrigðum sem kom fyrst út árið 1981 en var endurútgefin árið 1999. Togarasagan varð sérstaklega vinsæl meðal sjómanna og þykir með fyndnari frásögum sem sagðar hafa verið af íslenskum sjóurum. Sú saga gerist um borð í síðutogara í salttúr við Grænland og segir frá skondnum og sérkennilegum náungum í áhöfninni og uppátækjum þeirra.
Saltstorkin bros inniheldur nítján samtengdar sögur sem gerast flestar í erlendum höfnum þegar siglt var með fisk til Þýskalands og Englands á sjötta áratugnum. Í mörgum þeirra er sagt frá sömu persónum og í Togarasögunni: Einari Alheims, Vatnaguðinum, Dodda sjóara og Álfi atómskáldi. Einnig koma við sögu nokkrar nýjar persónur svo sem Benni stuð, Svarti presturinn og Díllinn. Skopmyndir höfundar sem teiknaðar voru um borð birtast hér á prenti í fyrsta sinn og falla afar vel að frásögnunum.
Hafliði Magnússon er höfundur sem segir kjarnmiklar sögur af kvennafari og slarki íslenskra sjómanna. Frásagnir hans byggja allar á sönnum atburðum þótt sumum kunni að þykja þær lyginni líkastar. Þær eru grátbroslegar og draga upp litríka mynd af horfnu tímabili íslenskrar sjómennsku.
Frétt og mynd www.thingeyri.com
Til baka
|