Álftir, tjaldar og laukar gá til veðurs
- Stutt í meginlandið
[22.03.2003]
Veturinn sem nú stendur kemst ekki í konungatölu, þó verður ekki á móti mælt að tíðin hefur verið
„konungleg“ það sem af er.
Átján bræður öskudags gætu átt erfitt uppdráttar ef svo heldur fram sem horfir, og ekki er heldur víst að
„páskahretið“ verði borubratt þó enn sé allra veðra von.
Álftahjón sáust í Trostansfirði um aðra helgi í mars og einnig tjaldar með höfuð undir væng, sömu helgi rak dauðan svartfugl í bugnum við Foss, en laukar hafa verið að gá til sólar af og til í vetur.
Færð hefur verið með ólíkindum, hægt að komast til „meginlandsins“ akandi, jafnvel á sumardekkjum, og fátt til trafala annað
en drullusvöð þar sem unnið er að vegagerð, og það sem merkilegast er, Trostansfjarðarheiði hefur lengst af verið haldið opinni.
Steypubíll kom frá Ísafirði, hlýtur það að teljast til tíðinda,
og lokið var við að steypa vegg sem skilur að sal og þjónustu íþróttahússins. Íþróttahúsið sjálft er væntanlegt á næstu dögum og er áætlað að það taki innan við viku að reisa það.
Stöllurnar, Una Áslaug og Dagmar í 5. bekk fóru í göngutúr og virtu fyrir sér framkvæmdirnar, meðan skólafélagarnir voru heima í flensu.
Frétt og myndir Jón Ingimarsson ( arnarh@snerpa.is
)
Til baka
|