Ræðunámskeið fyrir
kvenfélagskonur
- Súlustaður í Bíldudals-Fjalla
[17.03.2003]
Í liðinni viku hélt Halldór Karl Hermannsson ræðunámskeið fyrir
Kvenfélagið Framsókn á Bíldudal.

Ræðumenn með leiðbeinanda
Námskeiðinu lauk með ræðukeppni í Baldurshaga. Umfjöllunarefni keppninnar var hvort setja ætti upp erótískan súlustað í Bíldudals-Fjalla.
Frummælandi var Heba Harðardóttir og meðflutningsmenn Hrafnhildur
Þ. Jóhannesdóttir og Hrönn Hauksdóttir. Andmælandi var Sonja
H. Jónsdóttir og meðflutningsmenn andmælanda voru Védís Thoroddsen og Kolbrún Matthíasdóttir.

Andmælendur

Frummælendur

Áheyrendur

Áheyrendur skemmta sér vel

Dómarar að störfum

Ræðuskörungur kvöldsins tekur við viðurkenningu
Vel var tekist á um málefnið og að lokum var ræðuskörungur kvöldsins tilnefndur Hrönn Hauksdóttir. Meðmælendur þess að setja ætti upp
súlustað urðu hlutskarpari í málflutningi sínum.
Dómarar voru Lára Þorkelsdóttir, Guðrún Valdimarsdóttir og Elínborg
A. Benediktsdóttir.
Til baka
|