Sóknarprestur í sjávarþorpi
- Grein Péturs Bjarnasonar um sr. Jón Kr. Ísfeld
[15.03.2003]
Á nýliðnu sólarkaffi Arnfirðingafélagsins flutti Pétur Bjarnason erindi sem hann helgaði sr. Jóni Kr. Ísfeld.

Jón Kr. Ísfeld og Auður Halldórsdóttir
Erindið byggði Pétur á grein sinni Sóknarprestur í sjávarþorpi - Sr. Jón Kr. Ísfeld á
Bíldudal sem birtist í Ársriti Sögufélags Ísfirðinga árið
2000. Erindi Péturs var bæði skemmtilegt og fræðandi eins og hans
er von og vísa og vakti almenna ánægju.
Grein Péturs er nú gerð aðgengileg hér á Arnfirðingi og geta þeir sem vilja lesið hana af skjánum eða prentað hana út og lesið af blaði. Greinin er
á PDF-formi sem krefst sérstaks forrits sem sækja má frítt af
Internetinu.
Í greininni eru margar skemmtilegar og fræðandi myndir
og byggir hún meðal annars á óprentaðri sjálfsævisögu
sr. Jóns Kr. Ísfeld sem Pétur hafði aðgang að er hann
vann að greininni.
Jón Kr. Ísfeld var lengst af prestur og sálusorgari Bílddælinga og Arnfirðinga og hagaði svo til að hann mátti hefja þjónustu sína á Bíldudal með því að ganga nánast í annað hvert hús og tilkynna andlát þeirra sem fórust í Þormóðsslysinu árið 1943 en meðal þeirra
sem fórust var presturinn sem hann var að leysa af.
Sr. Jón Kr. Ísfeld starfaði eftir þessa þolraun af miklum krafti og með mikilli ástúð og hlýju á Bíldudal og telja margir það gæfu sína að hafa kynnst honum og alist upp við þau tækifæri sem hann lagði sig fram við að skapa ungu fólki á
Bíldudal í trúboðsstarfi sínu.
Sóknarprestur í sjávarþorpi - Sr. Jón Kr. Ísfeld á
Bíldudal (1.5MB pdf)
Netfang Péturs Bjarnasonar er petur@sibs.is
Sjá einnig Jón Kr. Ísfeld
- Sóknarprestur, prófastur og rithöfundur
Til baka
|