Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Ný hljómsveit kemur fram
  - Æft stíft fyrir sumarhátíðina
[12.03.2003]  

Nú styttist óðum í Bíldudals grænar... og hafa því nokkrir áhugasamir félagar frá Bíldudal tekið upp á því að hittast reglulega með hljóðfæri sín og æfa fáein lög sem þeir hyggjast flytja fyrir gesti í sumar. 

Ný hljómsveit

Fyrstu æfingar hafa gengið þokkalega, dusta þurfti svolítið ryk af gíturum þeirra elstu í hópnum en allt er þetta að smella saman og til gamans gert.

Vitað er að fjölmargir Arnfirðingar spila á hljóðfæri og eru þeir hvattir til þess að gera eins og félagarnir, æfa nokkur lög og vera með í sumar. Það verður öllum frjálst að troða upp og skemmta sér og öðrum.

Meðlimir hljómsveitarinnar á mynd: Gísli Ágústsson, Arnar Guðmundsson, Víkingur Gunnarsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Magnús Óskarsson og Jörundur Garðarsson. Kolbeinn Gunnarsson er einnig í bandinu en var farinn af æfingu þegar myndin var tekin. 

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is