Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Rækjukvótinn í Arnarfirði aukinn
  - Þokkalegt ástand á rækjunni
[08.03.2003]  

Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að rækjukvóti í Arnarfirði verði aukinn úr 550 tonnum í 650 tonn á yfirstandandi vertíð. 

Bíldudalshöfn
Bíldudalshöfn

Unnur Skúladóttir, fiskifræðingur hjá Hafró, segir ráðleggingar stofnunarinnar byggðar á tveimur síðustu könnunum hennar í vetur. 

Í fyrra var rækjukvótinn í Arnarfirði ákveðinn 750 tonn, árið 2001 var hann 650 tonn en fiskveiðiárin 1997 til 1999 var hann 550 tonn hvert ár.

„Ástandið á stofninum er nokkuð gott. Hann er ekki í hámarki en síðustu þrjú ár hafa gefið betri raun en tímabilið þar á undan“, segir Unnur.

Frétt bb.is og mynd Jón Þórðarson ( jth@snerpa.is )

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is