Skipulagsstofnun fellst á kalkþörunganám
- Íslenska kalkþörungafélagið fer yfir úrskurðinn
[08.03.2003]
Skipulagsstofnun hefur tilkynnt Íslenska kalkþörungafélaginu ehf að stofnunin fallist á fyrirhugað kalkþörunganám í Arnarfirði.

Frá Hvestusandi í Arnarfirði
Næstu skref verða að leita til iðnaðarráðuneytis varðandi útgáfu starfsleyfis fyrir nám úr setlögum í Arnarfirði.
Íslenska kalkþörungafélagið fer nú yfir úrskurð Skipulagsstofnunar og þau tilmæli sem stofnunin setur þar fram.
Í niðurstöðu Skipulagsstofnunar segir að kynnt hafi verið nám á allt að 57.000 rúmmetrum kalkþörungasets árlega til 50 ára af fjórum svæðum á grunnsævi í Arnarfirði.
Nám mun hafa veruleg áhrif á búsvæði kalkþörunga á efnistökusvæðum og áhrif þess á dreifingu fínefna og botnfalls þeirra á óröskuðum kalkþörungasvæðum eru óljós.
Stofnunin mælist til að við veitingu starfsleyfis verði haft í huga:
- að val á námusvæðum verði takmarkað við suðurhluta Langanesgrunns, Fossfjörð og Reykjafjörð, þar sem innihald fínefna er hvað minnst samkvæmt mælingum (50 % eða lægra) og mælst er til að ekki verði unnið nema á einu svæði í einu,
- að vöktun verði á útbreiðslu fínefna við dælingu úr setlögum og áhrif þeirra á kalkþörungasetlög í nágrenni við dælustað m.t.t. hugsanlegra mótvægisaðgerða,
- að nánari úrvinnsla fari fram á gögnum um botndýr á kalkþörungasvæðum þar sem verndargildi sé enn óljóst,
- að stjórnvöld beiti sér fyrir mörkun heildarstefnu um nýtingu kalkþörunga við strendur Íslands.
Stofnunin telur að öðru leiti muni nám á kalkþörungasetlögum ekki hafa veruleg áhrif á fugla, fisk, fiskveiðar, fiskeldi, krækling eða kræklingarækt og að fyrirhugð framkvæmd sé líkleg til að hafa jákvæð áhrif á atvinnulíf og íbúaþróun á sunnanverðum Vestfjörðum.
Kæra má úrskurð Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra og er sá frestur settur til 9. apríl 2003.
Íslenska kalkþörungafélagið ehf er í eigu Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða
hf.
Sjá: NÁM KALKÞÖRUNGASETS ÚR ARNARFIRÐI, VESTURBYGGÐ OG ÍSAFJARÐARBÆ - Úrskurður Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum
Frétt Tíðis og bb.is, mynd Jörundur Garðarsson ( jorund@skaginn.is
)
Til baka
|