|
Íţróttafólki veittar viđurkenningar
- Pálmi Ţór Gíslason er íţróttamađur ársins á Bíldudal
[21.02.2003]
ÍFB veitti íţróttafólki sínu bikara á sólarkaffi Bílddćlinga sunnudaginn 16.febrúar. Ađ ţessu sinni var ekki einungis veittur bikar fyrir íţróttamann ársins heldur var bćtt viđ sex nýjum bikurum:
- fyrir fótboltamann ársins,
- körfuknattleiksmann ársins,
- frjálsíţróttamann ársins,
- bestu ástundun,
- besta afrek og
- mestu framfarir.

Pálmi Ţór Gíslason er íţróttamađur ársins á Bíldudal
Pálmi vann til margra afreka á árinu 2002, á unglingamóti HHF vann hann 5 greinar af 7, varđ í 2 sćti í kringlu og 3 sćti í spjóti, á Hérađsmóti HHF vann hann 6 greinar af 7 og varđ í 2 sćti í spjóti. Hann vann kvöldmótin í sínum aldursflokki, 14 ára, og var annar stigahćstur á mótinu.
Á unglingalandsmótinu í Stykkishólmi var hann í 2 sćti í kúlu og munađi ţar ađeins 7 sm ađ hann hafi bćtt 10 ára gamalt hérađsmet.
Hann bćtti sig töluvert í 2 greinum, í kúlu bćtti hann sig um 1.66 m úr 10.92 í 12.58 og í kringlunni bćtti hann sig um ekki meira né minna en 13.1 m úr 21.87 í 34.97.
Pálmi er fjölhćfur íţróttamađur og viđ skulum vona ađ hann haldi áfram á sömu braut.
Ţessir hlutu bikarana:
- Besta ástundun – Lovísa Rut Jónsdóttir, var dugleg ađ mćta bćđi í fótboltann og frjálsarnar. Lovísa verđur 8 á árinu.
- Mestu framfarir – Andrea Viđarsdóttir, hún bćtti sig um 20 sm í hástökkinu, fór úr 0.80 m í 1.00 m. Framtíđar hástökkvari ţar á ferđ. Andrea verđur 12 á árinu.
- Besta afrek – Pálmi Ţór Gíslason, hann setti hérađsmet í kringlunni og kastađi ţar 34.97 m. Pálmi verđur 15 á árinu.
- Besti fótboltamađur – Matthías Leó Matthíasson, verđur 16 á árinu.
- Besti körfuknattleiksmađur – Birkir Ţór Karlsson, verđur 16 á árinu.
- Besti frjálsíţróttamađur – Pálmi Ţór Gíslason.
Frétt Tíđis -
patreksfjordur.is
Mynd Tíđis / jţ
Til baka
|
|