Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Þorrablót Kvennadeildar Slysavarnafélagsins
  - Haldið í Baldurshaga á Bíldudal
[15.02.2003]

Sjáðu einnig myndir af þorrablótinu!



Laugardaginn 1. febrúar var hið árlega þorrablót Kvennadeildar Slysavarnafélagsins haldið á Bíldudal.

Fjölmenni var á blótinu og fór það hið besta fram í alla staði. Eldri borgarar voru mættir að vanda í boði deildarinnar og hefur sá siður verið viðhafður um margra ára bil að bjóða þeim sérstaklega. 

Þorramaturinn var framúrskarandi og nýnæmi var að því að fá nú loks að smakka súran hval. 

Sigríður Bjarnadóttir formaður ávarpaði samkomuna og fór yfir farinn veg en Kvennadeildin var stofnuð árið 1933 og er því 70 ára á þessu ári. Heba Harðardóttir flutti annál síðasta árs við góðar undirtektir og flutt voru nokkur söngatriði við heimatilbúna texta kvennanna og undirleik Viðars Ástvaldssonar. 

Ekki brugðust skemmtiatriðin heldur og eiga þær kvennadeildarkonur mikið lof skilið fyrir frábæra skemmtun. 

Að loknu minni karla og kvenna og fjöldasöng undir stjórn Arnar Gíslasonar og Jóns Ingimarssonar hófst dansleikur. Viðar og Matti eru miklir músikantar og héldu þeir uppi fjörinu til þrjú. 

Jón Kr. Ólafsson söngvari kom fram og tók fínar syrpur með strákunum. Undirritaður tók nokkrar myndir við þetta tækifæri og fylgja þær hér með.


Frétt og myndir Jörundur Garðarsson (jorund@skaginn.is)

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is