Nýr löndunarkrani á Bíldudalshöfn
- Um 500 landanir á ári
[15.02.2003]
Nýr löndunarkrani er nú að koma á höfnina á Bíldudal.

Starfsmenn Vesturbyggðar hafa unnið að undirbúningi fyrir uppsetningu hans. Gert er ráð fyrir að kraninn verði klár til notkunar á mánudag.
Samkvæmt upplýsingum hafnarvarðar Bíldudalshafnar eru um 500 landanir á ári á Bíldudal.

Snæbjörn Árnason landar á gamla krananum
Rækjuveiðin hefur gengið afar vel það sem af er vertíð og er afli á sókanreiningu mun meiri en undanfarin ár, en þrátt fyrir það hefur kvóti verið skertur frá fyrra ári um 100 tonn. Ný lokið er vorrannsókn á firðinum og binda menn vonir við að aukið verði við kvótann.
Svo er nammidagur í dag og náði undirritaður tveimur myndum af því tilefni og fljóta þær hér með.


Frétt og myndir Jón Þórðarson ( jth@snerpa.is
)
Til baka
|