Sólarkaffi Arnfirđingafélagsins 2003
- Haldiđ í Breiđfirđingabúđ 9. febrúar
[13.02.2003]
Sólarkaffi Arnfirđinga var haldiđ í Breiđfirđingabúđ, sunnudaginn 9. febrúar. Mćting var framar vonum ţví í salnum mun hafa veriđ um 150 manns, fólk á öllum aldri og var ekki annađ ađ sjá en ađ allir skemmtu sér konunglega.
Ţegar gestir mćttu í salinn tók á móti ţeim ilmandi pönnukökulykt ţví fjórir vaskir sveinar, ţeir Helgi Hjálmtýsson, Magnús B. Óskarsson, Svavar Sigţórsson og Ţröstur Leo Gunnarsson hömuđust viđ ađ baka pönnukökur og gátu ţví gestir gćtt sér á glóđvolgum pönnsum.
Ţađ var einnig bođiđ upp rjómapönnukökur og kleinur sem bakađar voru af Vilborgu Jónsdóttur og sendi hún ţćr frá Bíldudal og viljum viđ fćra henni sérstakt ţakklćti fyrir.
Elín Bjarnadóttir frá Hvestu fráfarandi formađur Arnfirđingafélagsins bauđ gesti velkomna og tilkynnti um skipti á međlimum í stjórn félagsins. Nýir međlimir verđa kynntir á nćstu dögum hér á vefnum. Elín flutti skýslu stjórnar og sagđi m.a. frá ţví ađ félagiđ hefđi
veitt styrk til kaupa á göngubretti fyrir aldrađra á Bíldudal.
Pétur Bjarnason hélt góđa hugvekju og eru honum fćrđar bestu ţakkir fyrir innlegg sitt. Erindi Péturs var helgađ sr.
Jóni Kr. Ísfeld sem margir munu ţekkja eđa kannast viđ. Verđur meira ađ frétta af ţví hér innan tíđar.
Á sólarkaffinu var kynnt Sumarhátíđin Bíldudals grćnar… sem haldin verđur á Bíldudal 27.-29. júní nk. Valdimar Gunnarsson sagđi gestum frá fyrirhugađri hátíđ, sýndi drög ađ dagskrá og kynnti merki hátíđarinnar sem Magnús B. Óskarsson teiknađi. Hátíđin verđur kynnt sérstaklega á nćstu dögum.
Ţórarinn Hannesson steig á stokk ásamt ţeim Bjarna Ţór Sigurđssyni og Guđmundi Hjalta Jónssyni og fluttu ţeir lag tileiknađ hátíđinni. Lagiđ ţótti hresst og skemmtilegt og vildu einhverjir senda ţađ beint í Eurovision-keppnina. Ţórarinn samdi bćđi lag og texta.
Ađ lokum vill nefndin koma á framfćri kćru ţakklćti til allra ţeirra er hjálpuđu til viđ ađ baka allt góđgćtiđ sem bođiđ var upp á. Án svona góđrar ađstođar vćri ţađ stjórn félagsins ofviđa ađ halda slíkar samkomur.
Kćrar ţakkir
Stjórn Arnfirđingafélagsins
Myndir Guđmundur Bjarnason (g.bjarnason@simnet.is)
Til baka
|