Minnismerki fyrirhugað
- Minnismerki fyrirhugað um sjómenn er fórust árið 1900
[01.02.2003]
Fyrirhugað er að reisa minnisvarða til minningar um menn þá úr Ketildalahreppi sem fórust 20. september aldamótaárið 1900 á sjó úti í vonskuveðri.
Fjórir bátar fórust, sautján menn létust, flestir frá bæjum í Arnarfirði. Ellefu konur urðu ekkjur eftir þennan hörmulega atburð, tuttugu og fjögur börn urðu föðurlaus og tveir 14 ára gamlir drengir fórust með einum bátanna.
Reynt verður að fá styrki frá fyrirtækjum og einstaklingum til að fjármagna verkið. Ekki hefur verið ákveðið hvenær minnisvarðinn verður afhjúpaður, en það fer óhjákvæmilega eftir því hvernig gengur að fjármagna framkvæmdina. Minnisvarðinn kemur til með að rísa við Selárdal í Arnarfirði.

Grétar Jón Guðmundsson
Það er Grétar Jón Guðmundsson á Patreksfirði sem stendur fyrir þessu framtaki með aðstoð manna á suðurfjörðum Vestfjarða. Við ætlum okkur að reyna að fjármagna þetta með styrkjum frá fyrirtækjum á staðnum og einstaklingum, segir Grétar Jón. Á Bíldudal sér Benedikt Benediktsson um fjáröflun, á Tálknafirði sjá Guðmundur Magnússon og Anna Maggý um fjáröflun, en Grétar Jón ásamt öðrum á Patreksfirði.
Við höfum stofnað bók fyrir þetta framtak, númerið á henni er: 1118-05-320 kt. 230441-7669. Þar geta þeir sem vilja lagt inn og styrkt þetta framtak, segir Grétar.
Þeir sem vilja fá frekari upplýsingar um þetta framtak eða atburðinn, geta haft samband við Grétar Jón í síma 456 1365.
Frétt og mynd Tíðis
Til baka
|