Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
Arnfirðingur.is
Draugur Draugur Draugur Draugur Draugur
Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
Lumar þú á frétt frá Bíldudal eða Arnarfirði? Sendu tölvupóst til ritstjórnar vefsins.
Veður, færð og skjálftar
Nýtt ár gengið í garð
  - Mannlíf á Bíldudal hefur sinn gang
[11.01.2003]

Nú er nýtt ár gengið í garð, veðrið hér fyrir vestan leikur við hvern sinn fingur, Vestfirsku Alparnir eru ekki einusinni hvítir.

Undirritaður fékk sér göngutúr í vorblíðunni og tók nokkrar myndir af mannlífinu. 

Arnar Guðmundsson hefur verið að endurbyggja húsið sem afi hans Sigurmundur Jörundsson átti. Er húsið frágengið að utan, eftir eru nokkur handbrögðin inni en verkinu miðar vel og er eigandinn og framkvæmda-maðurinn Arnar ánægður með verkið. 

Arnar við vinnu sína
Arnar við vinnu sína

Fallegt og snoturt hús í nýjum búningi
Fallegt og snoturt hús í nýjum búningi

Arnar Guðmundsson í dyrum hússins
Arnar Guðmundsson í dyrum hússins

Þrír bátar róa á línu en það eru Þrándur BA, Skarfaklettur BA 322 og Þórdís BA 74 og því er mikið um að vera í beitningaskúrunum.

Benni og Rúnar
Benni og Rúnar

Jökull og Einar
Jökull og Einar

Rúnar, Andri, Hjörtur og Einar
Rúnar, Andri, Hjörtur og Einar

Nú er að hefjast seinni hluti rækjuvertíðar og eru rækjumenn að gera klárt þar á meðal þeir bræður Sverrir og Kalli. 

Sverrir og Kalli gera klárt fyrir rækjuna
Sverrir og Kalli gera klárt fyrir rækjuna

Ýmir BA 32
Ýmir BA 32

Páll Ágústsson við löndun
Páll Ágústsson við löndun

Brík BA og Ýmir BA eru búnir með sinn kvóta. Brík BA er að fara á dragnót en Ýmir BA á net. Höfrungur BA hefur verið á dragnót en er að skipta yfir á rækju. Þannig að líflegt hefur verið á höfninni að undanförnu. 

Frétt og myndir Jón Þórðarson (jth@snerpa.is)

Til baka

 Heim | Fréttir | Menning | Myndir | Hátíð | Gestabók Veftré | Tenglar | Leit.is 
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is