|
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bíldudalskarlar hittast á morgun í Kænunni Hafnarfirði í kaffi og spjall. Reynir Magnússon mun segja frá rafstöðvarverkefninu. Allir velkomnir.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingafélagið í Reykjavík var að fá styrk kr. 250.000 frá Landsbanka Íslands í skógræktarverkefnið fyrir ofan Bíldudal og til grisjunar fram í gömlu skógræktini. Þetta er mikil viðurkenning á því starfi sem þarna hefur verið unnið. Á árinu 2011 voru gróðursettar um 5.000 plöntur og er stefnt að því að vera með helst meira á þessu ári. Allt þetta starf er unnið í samvinnu við og undir öryggri forustu skógræktarfélags Arnfirðinga, en formaður þar er Runólfur Ingólfsson og skógræktarfélagi Íslands en framkvæmdastjóri þar er Brynjólfur Jónsson. Það er hægt að telja upp langan lista fólks sem hefur lagt hönd á plóginn varðand skógræktina í Bíldudal, allt þetta fólk á þakkir skilið.
Hafið það í huga í sumar þegar þið farið vestur að koma við á Bíldudal, heimsækja Runólf og fá hjá honum plöntur og tæki til að planta. Hann segir svo til um hvar best er að setja niður.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Árbók Barðastrandarsýslu 2011 er komin út, 22. árgangur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
|
Mikil aðsókn er í skötuveisluna miklu í Kænunni á laugardaginn og er allt orðið fullt og ekki hægt að taka við fleiri pöntunum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingafélagið verður með skötuveislu í Kænunni Hafnarfirði laugardaginn 17. desember kl 13.
Boðið verður uppá ekta vestfirska skötu, saltfisk, síldarrétti og hval.
Í fyrra mættu 125 manns og var uppselt og er því betra að panta í tíma.
Vinsamlegast pantið hjá: Guðmundi Bjarnasyni í síma 8624289/5752360, netfang gummibjarna12@gmail.com og Valdimar Gunnarsson sími 8948503, netfang avg@simnet.is
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingamessa í Áskirkju
Sérstök Arnfirðingamessa verður í Áskirkju sunnudaginn 6. nóvember kl. 11.
Kirkjukór Bíldudalskirkju, Hjálpræðiskórinn, sér um tónlistarflutning í messunni ásamt Guðkompaníinu frá Bíldudal með hjálp góðra manna. Sr. Sigurður Jónsson, sóknarprestur Ásprestakalls, þjónar fyrir altari en sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, sóknarprestur Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls, predikar.
Eftir messu verður félagið með kirkjukaffi í safnaðarheimili kirkjunnar. Aðgangseyrir er kr. 1.500, frítt fyrir börn 14 ára og yngri.
Félagið þakkar Áskirkju stuðninginn og hvetur Arnfirðinga nær og fjær til að mæta til kirkju.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Söngvarinn Jón Kr. Ólafsson frá Bíldudal heldur stórtónleika í FÍH salnum þann 17. september næstkomandi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bjs. Kópur fór í óvenjulega leiðangur um daginn þegar þeim barst hjálparbeiðni frá bóndanum á Laugabóli þegar kálfur hafði fallið fram af brún á Langanesi ...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Héraðsmóti Hrafna-Flóka var haldið nú um helgina 15 – 17 júlí. Keppnin gekk vel fyrir sig og var allt í járnum fram á síðustu grein. Í firsta sinn þá var telft fram sameiginlegu liði frá ÍFB og UMFB í héraðsmót og heppnaðist það mjög vel og varð keppnin enn meira spennandi fyrir vikið ... sjá meira.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Meistaramót GBB var haldið nú um helgina í sumarblíðu á Litlueyrarvelli þar sem leiknar voru 18 holur á laugardeginum og 18 á sunnudeginum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Líknarsjóður Bíldudalskirkju verður stofnaður við Guðsþjónustu á Bíldudals grænum.. laugardaginn 25. júní kl. 11 í Bíldudalskirkju. br> br>
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hátíðarlag Bíldudals grænna... 2011 verður frumflutt á Tungunni þegar hátíðin verður sett föstudaginn 24. júní kl. 20. br> br>
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Dagskráin hefst fimmtudaginn 23. júní nk. en formleg setningarathöfn fer fram á Tungunni á föstudagskvöldinu samkvæmt venju kl. 20 og hátíðinni lýkur svo sunnudaginn 26. júní.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú eru einungis tæpar tvær vikur í að fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar … 2011 hefjist og óhætt að segja að eftirvænting liggi í loftinu. Hátíðarnefnd hefur fundað vikulega síðan um áramótin og unnið hörðum höndum síðustu vikur við undirbúning og skipulagningu enda í mörg horn að líta. Nokkrar mannabreytingar urðu fljótlega á nefndinni en hitann og þungann af starfinu hafa borið þau Svavar Sigþórsson, Gylfi Jónasson, Valdimar Gunnarsson, Sigríður B. Snæbjörnsdóttir, Linda Guðlaugsdóttir, Jens Valdimarsson, Þór Austmar, Guðmundur Bjarnason og Kristín Pétursdóttir. Ása Dóra Finnbogadóttir stýrir svo umhverfisnefnd á Bíldudal.... sjá meira...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fyrir 25 árum hófst gróðursetning trjáa í hlíðinni fyrir ofan Bíldudal. Nú er meiningin að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið með myndarlegum hætti og er ráðgert að planta 6.000 trjám í sumar. Á næstu árum er svo áætlað að halda gróðursetningu áfram og jafnframt stendur til að gera göngustíg eftir hlíðinni fram dalinn. Einnig er fyrirhugað að hefja grisjun í gömlu skógræktinni sem orðin er hálfrar aldar gömul. Gróðursetningarátakið hefst formlega á Tungunni þjóðhátíðardaginn 17. júni nk., kl. 10:00. Allir sem geta eru hvattir til að mæta og setja niður nokkur tré. Að gróðursetningu lokinni er svo tilvalið að njóta dagsins hinum megin Arnarfjarðar, á Hrafnseyri, þar sem 200 ára fæðingarafmælis Jóns Sigurðssonar verður minnst með hátíðarhöldum.
Alla vikuna fram að Bíldudals grænum og á meðan hátíðin stendur yfir, er fólk hvatt til að taka þátt í þessu verkefni og planta trjám. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Runólf í síma 899-7140, Jens í síma 898-0829 eða Víking í síma 618-9805. italya vizesiitalya vizesi Uçak Bileti Uçak BiletiVize Başvurusuvizem.nethref="http://www.ucuzucakbilet.gen.tr" title="ucuz uçak bileti">Ucuz uçak bileti
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú er orðið staðfest að ferðaþjónustufyrirtækið Umfar mun bjóða uppá gistingu á Bíldudals grænum í nýju gámahóteli. Umfar er nýtt fyrirtæki á svæðinu sem býður uppá skipulagðar gönguferðir og mun þessi gisting vera notuð í tengslum við þær ferðir. Á Bíldudals grænum verður boðið uppá gistingu í tveggja manna herbergum með morgunmat. Allar nánari upplýsingar og pantanir á heimasíðu fyrirtækisins www.umfar.is
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Áhugamenn um uppbyggingu Rafstöðvarinnar á Bíldudal vinna hörðum höndum að verkefninu og miðar vinnu vel áfram. Nú hefur þess eljusami hópur komið sér upp heimasíðu, rafstodin.net, þar sem fylgjast má með þessu áhugaverða starfi í máli og myndum....
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Það verður vinnuhelgi í Rafstöðinni í Bíldudal 7.-8. maí og á laugardagskvöldið verður salsakvöld í Skrímslasetrinu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingafélagið óskar öllum Arnfirðingum og öðrum velunnurum félagsins gleðilegrar páskahátíðar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Leikfélagið Baldur á Bíldudal mun halda sitt árlega Grímuball aðfaranótt laugardagsins 23. apríl kl 00:01.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fótboltamót verður haldið á Bíldudals grænum... föstudaginn 24. júní frá kl. 13 til kl. 15.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
30 manns mættu á aðalfund Arnfirðingafélagsins sem fram fór á Kænunni í Hafnarfirði í dag. Guðmundur Bjarnason, formaður félagsins, gerði grein fyrir störfum stjórnar og þeim verkefnum sem framundan eru. Ber þar hæst undirbúningi fyrir fjölskylduhátíðina Bíldudals grænar… sem fram fer síðustu helgi júnímánaðar nk. ....sjá meira....
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Í sumar er stefnt að því að gróðursetja 6.000 plöntur á Bíldudal. Allir sem hafa áhuga á að planta trjám geta komið að þessu verkefni. Sérstaklega viljum við benda þeim á það sem ætla að halda fjölskyldumót á Bíldudal, að tilvalið sé að hafa það sem hluta af dagskrá að planta trjám á staðnum. Plönturnar koma til Bíldudals í byrjun júní .... sjá meira ...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Um síðustu helgi voru tveir hópar að störfum við verkefni á Bíldudal. Skrímslamenn voru að vinna að stækkun á sýningunni í Skrímslasetrinu og síðan voru það rafstöðvarmenn sem unnu hörðum höndum að því að losa vélar og búnað og gera tilbúinn til flutnings. Laugardagskvöldið var síðan sameiginlegt þar sem hóparnir grilluðu samana í Skrímslasetrinu og snæddu dýrindis steik sem matreidd var af Víkingi og Gísla Ægi. Var það mál manna að aldrei hefur sósan verið betri og spurning um hvort sósugerðarmeistara síðustu þriggja ára, Páli Ágússyni, hafi verið vellt af stalli.
kitapx
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Aðalfundur Arnfirðingafélagsins verður haldinn á Kænunni í Hafnarfirði laugardaginn 26. mars nk. kl. 10:00, á mánaðarlegu Kænukaffi Bíldudalskalla. Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Helgina 19.-20. mars áætlar rafstöðvargengið vinnuferð í gömlu rafstöðina á Bíldudal. Í þessari ferð á að losa allar vélar og búnað og undirbúa undir flutning suður þar sem hvort tveggja verður gert upp. Þeir sem áhuga hafa á að leggja verkefninu lið geta snúið sér til Gumma Bjarna s. 862 4289 eða Reynis Magnúsar 862 1832. Í vinnslu er síðan heimasíða fyrir verkefnið þar sem hægt verður að fylgjast með framgangi þess.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Í morgun hittust Bíldudalskarlar í Kænunni eins og þeir gera alltaf síðasta laugardag í hverjum mánuði. Adolf Friðriksson fornleifafræðingur var með kynningu á uppgreftinum í Hringsdal. Mikil ánægja var með fyrirlesturinn sem var bæði fróðlegur og skemmtilegur. Góð mæting .......
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingafélagið stendur fyrir kynningu á fornleifauppgreftrinum í Hringsdal á Kænunni í Hafnarfirði laugardaginn 26. febrúar nk. kl. 10. ....
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
|
Í gær hélt Arnfirðingafélagið í Reykjavík sitt árlega sólarkaffi til að fagna hækkandi sól. Þetta er siður sem brottfluttir hafa tekið með sér suður en á Bíldudal er venja að fagna því með kaffi og sólarpönnukökum þegar sól sést á ný sem er í byrjun febrúar. Sólarkaffið var haldið í Húnabúð og var ......
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Í keltnesku máli þýðir orði Bíldudalur laufdalur. Getur verið að Keltar hafi verið hér áður en norrænir menn námu hér land en í Arnarfirði og víða á landinu eru örnefni sem benda til þess. Nú eru uppi áform um að hefja skipulagða skógrækt í Bildudal sem í framtíðinni verður vonandi til þess að dalurinn geti með réttu kallast Laufdalur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Sólarkaffi Arnfirðinga verður haldið í Húnabúð, Skeifunni 11 (3. hæð í sama húsi og Þvottahúsið Fönn) sunnudaginn 13. febrúar nk. kl 15.00. Boðið verður upp nýbakaðar pönnukökur að venju ásamt fleira góðgæti. Pétur Bjarnason og Þröstur Leó fara með gamanmál og Jón Kr. Ólafsson stígur á stokk ásamt valinkunnum hljóðfæraleikurum úr heimabyggð, þeim Pétri Bjarnasyni, Pétri Valgarð Péturssyni og Ólafi Kristjánssyni.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hið árlega sólarkaffi Kvenfélagsins Framsóknar verður haldið í félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal þann 6. febrúar næstkomandi kl. 15.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú um helgina verður fyrsta vinnuferðin hjá rafstöðvargenginu. Í rafstöðvargenginu er áhugamenn um uppbyggingu á gömlu rafstöðinni á Bíldudal. Gengið er öllum opið sem vilja leggja uppbyggingunni lið og öll hjálp og aðstoð er vel þegin. Byrjað verður að vinna kl. 10:00 á laugardagsmorgun og unnið fram eftir degi. Bílddælingar eru hvattir til að kíkja við og aldrei að vita nema heitt verði á könnunni.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hið árlega sólarkaffi Arnfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldið í Húnabúð, Skeifunni 11, sunnudaginn 13. febrúar. Allir félagsmenn og velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta og fagna hækkandi sól.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Björgunarsveitin Kópur verður með flugeldasölu í björgunarhúsinu Hafnarbraut 12.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Vísnavinafélagið Skammdegisörninn heldur hið árlega vísakvöld að þessu sinni í Skrímslasetrinu á Bíldudal á annan í jólum.
vuuv
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Árleg skötuveisla Arnfirðingafélagsin í Reykjavík var haldin í Kænunni í Hafnarfirði í dag. Í veisluna mættu yfir eitthundrað og þrjátíu gestir sem gæddu sér á gómsætri skötu sem verkuð var af Ársæli Egilssyni í Tálknafirði.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Það er ekki bara hann Öddi sem svíður upp á gamla mátann.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Seinni styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2010 fór fram í Melrakkasetrinu í Súðavík þann 11. desember.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Árbók Barðastrandarsýslu 2010 er komin út, 21. árgangur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Útgáfuhátíð Vestfirska forlagsins fyrir jólin fer fram á Cafe Catalina í Kópavogi þriðjudaginn 14. desember n.k. kl. 20.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Til eru þeir sem svíða sviðin sín sjálfir með gamla laginu og eru ekkert að kaup þetta tilbúið úr búð.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingafélagið verður með skötuveislu í Kænunni við höfnina í Hafnarfirði laugardaginn 18. desember kl 13.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Útför Óskars Magnússonar frá Bíldudal fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 4. desember kl. 14.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Ýmsar uppákomur og fundir fóru fram á Bíldudal í nóvembermánuði þetta árið.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fyrir stuttu undirrituðu Vesturbyggð og Áhugamannafélagið Gyða samning þar sem Gyðumenn leigja rafstöðina af sveitarfélaginu til 25 ára.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Frestur til að panta jólakort til fjáröflunar fyrir Arnfirðingafélagið hefur verið lengdur til 29. nóvember.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bíldudalskarlar hittast reglulega í kaffi á Kænunni í Hafnarfirði síðasta laugardag í mánuði.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hafin er sala á jólakortum til fjáröflunar fyrir Arnfirðingafélagið.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Útför Ólafs Gíslasonar frá Neðri-Bæ í Selárdal fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn 27. nóvember kl. 14.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á sjötta tug manna sóttu málþing um gerð nýtingaráætlunar fyrir strandsvæði Arnarfjarðar.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nemendur í 5. og 7. bekk Grunnskóla Vesturbyggðar á Bíldudal hrepptu 1. sætið í myndbandakeppni 66°NORÐUR.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hjörtur Smárason er í framboði til stjórnlagaþings en hann er frá Bíldudal, sonur Helgu Gísladóttur kennara á Patreksfirði.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingar og Önfirðingar blésu til haustfagnaðar Vestfirðinga á Cafe Catalina í Kópavogi á föstudaginn.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingafélagið og Önfirðingafélagið hafa slegið sér saman um haustfagnað á Cafe Catalina, Hamraborg 11 í Kópavogi, föstudaginn 12. nóvember.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur veitt leyfi til veiða á 400 tonnum af innfjarðarrækju í Arnarfirði.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Björgunarsveitin Kópur verður í Reykjavík dagana 4.-6. nóvember að selja neyðarkallinn.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bíldudalskarlar hittast á Kænunni í Hafnarfirði á laugardaginn kl. 10:00 - 12.00 Hvetjum menn til að kíkja við og taka létt spjall og kanski kaffibolla.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Næstkomandi laugardag hittast Bíldudalskarlar í Kænunni í síðasta sinn á þessum vetri. Nú er um að gera að kíkja við og hitta gamla vini og kunningja og leita frétta af Bíldudals grænum ... o.fl.
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Jói Öddu sendi inn grein á www.arnfirdingur.is í maí þar sem hann hvetur alla Arnfirðinga og aðra velunnara verkefnisins til þess að styrkja setrið. Jói, sem leggur inn andvirði tópaksdósar í hverjum mánuði, skorar á fleiri að fylgja fordæmi sínu. Fyrir þá sem ekki taka í nefið skal upplýst að dósin kostar um 5-600 krónur. Grein Jóa er hér Skrímslasetur myndir
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
|
Nú er hittingur hjá Bíldudalskörlum á laugardaginn. Hittumst í Kænunni í Hafnarfirði kl. 10:00 - 12:00. Allir velkomnir.hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Undanfarnar helgar hefur verið unnið af kappi við að byggja upp Skrímslasetur á Bíldudal.hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bíldudalskallar munið kaffið á Kænunni á laugardaginn milli 10 og 12. hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar… er nú haldin í fjórða sinn í sumar þann 26. júní til 28. júní á Bíldudal. Undirbúningshópur hefur þegar hafið störf við skipulagningu hátíðarinnar og gerir ráð fyrir að uppsetning dagskrárliða verði að mestu með hefðbundnu sniði, þó alltaf sé um einhverjar áherslubreytingar að ræða milli hátíða. Hátíðin ......hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Föstudagskvöldið 27. febrúar n.k. verða haldnir styrktartónleikar fyrir tónlistarsafnið Melódíur minninganna. Tónleikarnir fara fram í FÍH salnum Rauðagerði 27, Reykjavík og hefjast stundvíslega kl. 21:00. Meðal þeirra tónlistarmanna sem koma fram eru: hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Þorrablót Slysavarnadeildar kvenna Bíldudal verður haldið laugardaginn 7. febrúar 2009 í Baldurshaga. Húsið opnar kl. 20:00 en skemmtunin hefst kl. 20:30. Aldurstakmark er 18 ár og miðaverð er 5000.- kr. hd film izleyelim Hin margrómuðu skemmtiatriði verða á sínum stað og stórsveitin Green Beans, mun sjá um að dansinn duni frameftir nóttu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Þorrablót brottfluttra íbúa Patreksfjarðar og Rauðasands verður haldið 31. janúar í sal Ferðafélags Íslands Mörkinni í Reykjavík. Öllum brottfluttum íbúum v-Barðastrandarsýslu er boðið á blótið. Auglýsing
hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Sunnudaginn 18. janúar verður sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir sett inn í embætti sóknarprests Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls af sr. Agnesi M. Sigurðardóttur prófasti Vestfjarðaprófastsdæmis.hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Prests- og djáknavígsla fór fram í Dómkirkjunni síðastliðinn sunnudag.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
60 Bíldudalskarlar hittust á Kænunni í Hafnarfirði þann 20. desember síðastliðinn til þess að borða saman skötu. Skatan var vel kæst og góð og létt var yfir mannskapnum. Tríóið Höfrungur... hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Komin er á markaðinn vestfirsk “Aðalbláberja sulta”löguð úr villtum íslenskum aðalbláberjum úr Arnarfirði. Berin eru tínd af lífrænt vottuðum heiðum Arnarfjarðar, blönduð lífrænum sykri. Aðalbláberja sultan er því lífræna afurð þó stimpillinn sé ekki kominn á enn, en hann kemur.kral oyun hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakall hefur ráðið nýjan prest en það er Ásta Ingibjörg Pétursdóttir. Ásta er eiginkona Helga Hjálmtýssonar og munu þau hjón flytjast vestur ásamt börnum sínum og setjast að á Bíldudal. Við óskum Ástu til hamingju með starfið og velfarnaðar í framtíðinni.kral oyun
komik videolarvideo izlekral oyunhd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Jólatónleikar og opið hús. Miðvikudagur 10. desember nk. kl. 18:00 Jólatónleikar í Birkimelsskóla. Fimmtudagur 11. desember nk. kl. 18:00 Jólatónleikar í Bíldudalsskóla. Þriðjudagur 16. desember nk. kl. 15:00 Lokaæfing í Félagsh. Patreksfjarðar Miðvikudagur 17. desember nk. kl. 18.00 Jólatónleikar í Félagsh. Patreksfjarðar
Fimmtudagur 18. desember nk. kl. 15.00 – 18.00 vreður opið hús í Tónlistarskólanum á Patreksfirði. Foreldrar og …
kral oyun hd film izleyelim
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Vestfirðingar, brottfluttir og aðrir fjarri heimabyggð, boða til bókakynningar í Veitingahúsinu Catalinu, Hamraborg 11 í Kópavogi, miðvikudaginn 10. desember n.k. kl. 20:30. Þar verða kynntar og lesið úr þremur af þeim ellefu bókum sem Vestfirska forlagið á Þingeyri gefur út fyrir þessi jól. kral oyun
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði vegna ársins 2009. Alls bárust 161 umsókn um styrki að fjárhæð 229 milljónir. Úthlutað var að þessu sinni 56 styrkjum, samtals að fjárhæð 30,4 milljónir. Félag um endurreisn Listasafns Samúels í Selárdal hlaut hæsta styrkinn, 2 milljónir króna.
Þá fengu Stofnun Árna Magnússonar, orðfræðisvið, og Ljósmyndasafn Íslands, … kral oyun
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Eins og í fyrra þá ætla Bíldudalskarlar að hittast í Kænunni í Hafnarfirði og snæða saman skötu laugardaginn 20. des. Nú þegar hafa yfir 30 manns skráð sig þannig að búast má við met þátttöku. Það er mikilvægt að menn skrái sig svo hægt sé að gera ráðstafanir útfrá fjölda. Hægt er að skrá sig í síma 575 2360 eða senda póst á arnfirdingur@arnfirdingur.is Allir velkomnir kral oyun
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Það vakti forvitni að sjá Björgunarsveitina Kóp uppi á Tungu. Hvurju var verið að bjarga? Frá jólakettinum sögðu þessir rauðklæddu skegglausu sveinar - það koma nefnilega engin jól ef ekki er jólatré á hól, torgi eða tanga. Og ef maður hefur ekki …
kral oyun
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Það er mikil tilhlökkun á meðal kórfélaga í Karlakórnum Vestra þar sem þeir koma nú fyrst fram obinberlega eftir að kórinn var stofnaður 1. maí sl. á Bjargtöngum. Á tónleikunum verður í anda árstíðarinnar flutt jóladagskrá. Einnig verður boðið upp á einsöng, dúett og kvartett. Efnisskráin er afar fjölbreytt. Miðaverð er 1000 krónur. Sunnudaginn 30. nóvember nk. verða fyrstu … kral oyun
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Næst komandi laugardag hittast Bíldudalskarlar á Kænunni í Hafnarfirði kl. 10:00. Allir velkomnir.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Málþingið Ferðamál til framtíðar verður haldið í Félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal laugardaginn 22. nóvember 2008. Málþingið er öllum opið. Allir þeir sem hafa áhuga á ferðaþjónustu á svæðinu eru hvattir til að mæta og taka þátt í störfum þingsins. Nánari upplýsingar má finna á www.vesturbyggd.is og …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Leiðin Bíldudalur - Reykjavík er 384 í kílómetrum talið, lengri í holum talið og jafnlangt til baka. Um það bil þegar leiðin er hálfnuð og Gilsfjörður að baki og kaffilöngun farin að gera vart við sig, blasir við vegfarendum Skriðuland, gamalt kaupfélag, nú vegaveitingastaður og verslun. Staður …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Síðasta laugardag í hverjum mánuði hittast brottfluttir Bílddælingar á Kænunni í Hafnarfirði fá sér kaffi og spjalla. Allir eru velkomnir í þennan hóp en næst verður hist laugardaginn 29. nóvember kl. 10:00. Í desember er síðan ætlunin að hittast þann 20. og borða saman skötu. Til þess að fá borðpláss er mikilvægt að panta og gera menn það hjá Gumma Bjarna í síma 575 2360.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Um miðan október var farin helgarvinnuferð í Skrímslasetrið á Bíldudal. Fjölmennur hópur sjálfboðaliða, um 30 manns, tóku þátt í verkefni helgarinnar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Björgunarsveitin Kópur Bíldudal mun eins og allar björgunarsveitir á landinu selja neyðarkall nú um helgina. Sveitin mun selja á höfuðborgarsvæðinu og verða sölumenn frá þeim staðsettir við Hagkaup í Skeifunni og Bónus í Skútuvogi. Nú styrkjum við frábært starf björgunarsveitanna og kaupum af þeim neyðarkall.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Í síðustu vinnuferð skrímslanna týndust bíllyklar (Skoda). Ef einhver finnur þá þá vinsamlegast hafið samband í síma 894 8503 (Valdimar).
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bíldudalskarlar ætla að hittast á laugardaginn 25. október kl. 10:00 í Kænunni í Hafnarfirði porno izle
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú um helgina verður vinnuhelgi í Skrímslasetrinu. Allir sem áhuga hafa á að leggja verkefninu lið eru velkomnir. Unnið verður á laugardaginn og fram á hádegi á sunnudag. Heyrst hefur að ýmislegt óvænnt muni gerast þessa helgi og alltaf fjölgar í hópnum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Það má segja nýstárlegt að sjá strandsiglingaskip við kajann á Bíldudal, en Eimskip hefur hafið strandsiglingar vestur á firði, til Ísafjarðar og Bíldudals. Um er að ræða tilraunaverkefni Eimskips sem stendur til áramóta. Fyrsta ferðin var farin til Ísafjarðar í síðasta mánuði en síðan bættist Bíldudalur við eftir að …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Gamla smiðjan á Bíldudal hefur munað tímana tvenna enda orðin öldruð. Hún var byggð 1894 og því 114 ára. Það var Pétur Thorsteinsson sem lét byggja smiðjuna og taldist hún ein fullkomnasta vélsmiðja landsins á sínum tíma. Eftir margra ára nag af tímans tönn á nú færa smiðjuna til betra horfs. Byrjað var á …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á lögbundnum frídegi, sunnnudegi, stóð hugur til spásseringar. Að hitta mann og annan. Skilja tilgang lífsins. En það var eins og allir hefðu ákveðið annað en ég og voru flestir fjarri arnfránum augum mínum. Ég fór því að hitta fjallið vin minn. Það fer ekki langt …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Dómsúrskurður í gær, sem hafnaði nýrri veglínu Vestfjarðavegar um þrjá firði, er feiknarlegt áfall, að mati forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar, sem hvetur til áfrýjunar. Talsmaður landeigenda mælist hins vegar til þess að hætt verði við vegagerðina. Vegagerðin hugðist bjóða verkið út um næstu áramót en þetta er lengsti og erfiðasti kaflinn á leiðinni milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur sem …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi úrskurð umhverfisráðherra um vegagerð um Teigskóg í Reykhólasveit. Vegagerðinni var ennfremur gert að greiða málskostnað stefnda. Málið var höfðað af Náttúruverndarsamtökum Íslands, Fuglaverndarfélagi Íslands og þremur einstaklingum gegn Vegagerðinni. Þess var krafist …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Ágætu brottfluttu Arnfirðingar. Við hjá Björgunarsveitinni Kóp á Bíldudal leitum að auglýsingakaupendum í árlegt dagatal sveitarinnar 2009. Ástæðan fyrir því að við leitum til ykkar er sú að fjáröflunarsvæði okkar hefur rýrnað og rýrnað undanfarin ár/áratug, fólki og fyrirtækjum fækkað...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Skrímslasetrið hefur skrifað undir samning við Hönnunarstofuna Gagarín um hönnun, uppsetningu og tæknivinnslu sýningar í Skrímslasetri. Verkefnið er margþætt...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Það varð uppi fótur og fit þegar litríkt sæskrímsli birtist fyrir utan Skrímslasetrið á Bíldudal um síðustu helgi. Ekki vakti þó skrímslið ótta heldur mikla lukku hjá krökkunum. Þarna var verið að prófa...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú eru skrímslin vöknuð af sumardvala og stefna vestur í vinnuferð. Nú á að setja á fulla ferð uppbyggingu setursins innandyra. Búið er að semja við fyrirtæki sem kemur í haust og setur upp sýninguna og verður húsnæðið að vera tilbúið þá. Skrímslamenn óska því eftir sjálfboðaliðum í þessa ferð sem farin verður helgina 29. ágúst. Það verður engin svikinn af því að koma með í skrímslaferð. Áhugasamir snúi sér til Gísla í síma 820 8358
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingurinn Sandra Dögg (dóttir Jóns og Höllu í Hvestu) er þátttakandi í samsýningu sem nú stendur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar kennir ýmissa grasa, ljósmyndarar á öllum aldri og með ólíkar áherslur. Flestar myndirnar á sýningunni eru einnig til sölu og er hún opin daglega á opnunartíma ráðhússins en síðasti sýningardagur er á sunnudag, 1. júní. Myndagallerý Söndru: www.flickr.com/timbersmith
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Lirfur er nýtt, íslenskt leikrit eftir Víði Guðmundsson og er þetta fyrsta verk höfundar. Leikendur eru Víðir Guðmundsson og Orri Huginn Ágústsson. Sýningin hefst kl:20 fimmtudaginn 29. maí og aðgangseyrir er enginn. Leikritið var æft og frumsýnt í Borgarleikhúsinu þar sem það var sýnt á lokuðum sýningum í mánuði unga fólksins.Verkið segir frá tveimur mönnum sem eru fastir saman á...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hér á vef Arnfirðings í gær var settur hlekkur inn á vef sveitarfélagsins sem sýnir fyrirhugaða eyðileggingu húsa í útplássinu á Bíldudal. Sú tenging er mjög sein og telja því ýmsir að sá hlekkur sé óvirkur. Hann er það ekki, en mjög seinvirkur. Verða því settar hér inn helstu myndir af honum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Mikið hefur verið rætt um verndun húsa á Íslandi undanfarin misseri. Ekki hvað síst í Reykjavík. Skemmst er að minnast uppkaupa Reykjavíkurborgar á húsunum að Lagavegi 4 og 6 fyrir tæpar sexhundruð milljónir. Húsafriðunarnefnd taldi húsin þröngt á litið, ekki hafa varðveislugildi. Hins vegar er það götumyndin sem m.a. geymir sögu gömlu Reykjavíkur hafa varðveislugildi, að mati …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Laugardaginn 31. maí opnar Gallerie Dynjandi að Dalbraut 1, Bíldudal. Opnunarsýningin verður tileinkuð Óskari Magnússyni listamanni á Bíldudal og verður um yfirlitssýningu að ræða. Þeir sem eiga málverk eftir Óskar og vilja góðfúslega lána þau á sýninguna...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Björn Magnússon skipstjóri á Brynjari BA 128 var brosmildur þegar hann kom í land í gærkvöldi með 6,5 tonn af Arnarfjarðarrækju. Var þetta stærsti túr skipstjórans hingað til. Svo mikill var aflinn að...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Um síðustu helgi var farin fimmta vinnuferðin í Skrímslasetrið. Unnið var við að einangra loft í móttöku, smíða milliveggi og snyrta til utandyra. Eins og í fyrri vinnuferðum var fjöldi sjálfboðaliða með í för og góður hópur heimamanna tók einnig til hendinni. Alls komu um 24 einstaklingar á einhvern hátt að verki helgarinnar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Allar helstu stórstjörnur landsins munu koma saman og halda stórtónleika til söfnunar fyrir Tónlistasafn Jóns Kr. Ólafssonar í Súlnasal Hótel Sögu 2. og 3. maí nk. Sjá auglýsingu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bílddælingurinn Birna Friðbjört S. Hannesdóttir er komin í átján liða úrslit frumkvöðlakeppni Innovit. Markmið keppninnar er að gefa háskólamenntuðum frumkvöðlum tækifæri að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim raunverulegar markvissar áætlanir, sem miða að stofnun fyrirtækja. Hugmynd Birnu er...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Helgina 11.- 13. apríl stefna skrímslin vestur í vinnuferð. Mikill fjöldi skrímsla af suðurlandi hafa ákveðið að flykkjast vestur á skrímslaslóðir til þess að taka þátt í uppbyggingu skrímslasetursins. Ljóst er að þessa helgi mun ýmislegt undarlegt gerast á Bíldudal þegar þessi fríði flokkur ryðst inn í friðsælan fjörðinn með bægslagangi og hamarhöggum. Heimaskrímslin er hvött til þess að sameinast vinum sínum að sunnan og taka þátt í atinu því reikna má með að laugardagskvöldið verði kyngimagnað að hætti skrímslanna. Af þessu má enginn missa. Öll skrímsli eru velkomin í hópinn sérstaklega skeljaskrímsli. Þeir sem vilja vera með hafi samband við Gísla fjörulalla í síma 899 9938. dizi izle video izle video
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á laugardaginn milli 10 og 12 verður kaffi hjá Bíldudalsköllunum á Kænuni í Hafarfirði. Milli tuttugu og þrjátíu manns hafa verið að mæta í kaffið að undanförnu og alltaf einhver ný andlit láta sjá sig í hvert sinn. Hvernig væri að mæta og heilsa upp á gamla kunningja. Allir velkomnir.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Skrímslakarlarnir fimm, þeir Arnar, Gísli, Kári, Maggi og Valdimar skruppu í vinnuferð til Bíldudals um páskana. Unnið var við að koma upp lofti og einangrun í það rými sem hýsa mun m.a. eldhús setursins og gekk verkið vel. Nú er búið að...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Aðfaranótt 22. mars 2008 verður árlegt grímuball leikfélagsins Baldurs haldið í Baldurshaga. Húsið opnar kl. 00.00 og mun hljómsveitin green beans spila fyrir dansi. Veglegir viningar verða í boði og má þar nefna flug fram og til baka með flugfélaginu Ernir og vinning frá Sæferðum. Aðgangseyrir verður: 2000 kr. fyrir ógrímuklædda 1500 kr. fyrir grímuklædda
Fólk er hvatt til að mæta tímanlega fyrir verðlaunaafhendinguna sem verður kl. 01:30. Aldurstakmark er 18 ár.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú hafa bloggarar á bloggi mbl.is tekið höndum saman og ætla að stofa samtök sem þau skammstafa BBV-samtökin. Þau ætla að berjast fyrir atvinnu- og mannlífi á Vestförðum. Stöðva væntanlega olíuhreinsistöð og eru með margar hugmyndir til að auka störf. Þar sem samtökin hafa ekki verið formlega stofnuð er þetta núna á kennitölu Jakobs Kristinssonar í Sandgerð, það mun fljótlega verða opnuð heimasíða.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bílddælingurinn Elfar Logi Hannesson, leikari á Ísafirði hefur verið tilnefndur til menningarverðlauna DV. Tilnefninguna hlýtur hann fyrir einleikjahátíðina Act Alone. Í tilnefningunni segir: „Einleikjahátíðin Act Alone, sem er eina reglubundna leiklistarhátíðin á Íslandi, hefur verið haldin á Ísafirði síðan 2004 og er að langmestu leyti framtak eins manns, Elfars Loga Hannessonar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Um 150 manns mættu á kynningarfund um fyrirhugaða Olíuhreinsistöð við Arnafjörðinn. Hilmar Foss hélt þar framsögu en skemmst er frá því að segja að mikill áhugi er hjá íbúum svæðisins á þessari framkvæmd. Um 300 milljarða kostar að reisa slíka stöð og er gert ráð fyrir því að ársveltan sé svipuð. Ekki kom fram í máli Hilmars hvenær …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Sólarkaffi Arnfirðingafélagsins verður haldið í dag kl. 15:00 í húsi Ferðafélags Íslands í Mörkinni.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
TILLAGA TIL BREYTINGAR Á AÐALSKIPULAGI VESTURBYGGÐAR Sveitarstjórn Vesturbyggðar samþykkti á fundi sínum 19. desember 2007 að auglýsa skv 21. gr. Skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar. Breytingin tengist snjóflóðavörnum á Bíldudal þar sem byggður verður leiðigarður og snjóflóðarenna. Tillögur að breytingum á aðalskipulagi eru þessar: Opið svæði til sérstakra nota Ú9 stækkar að Lönguhlíð og …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Vakin er athygli á því að ferjan Baldur fer tvær ferðir föstudaginn 15. febrúar. Ferðaáætlunin er eftirfarandi:
Frá Stykkishólmi kl 09:00 og aftur kl. 15:00. Frá Brjánslæk kl 12:00 og aftur kl. 18:00.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Sá miskilningur varð varðandi aukaferðar Baldurs 15. febr. nk. að um ranga dagsetningu var að ræða. Aukaferðin verður farin 7. mars nk. en þá fer hópur grunnskólanema á hið árlega „Samfés“. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Aukaferðin verður auglýst þegar nær dregur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fjórðungssamband Vestfirðinga gengst fyrir málþingi um stóriðnað á Vestfjörðum í lok mánaðarins. Verður málþingið haldið á Bíldudal laugardaginn 23. febrúar og sama málþingið, með sömu fyrirlesurum, verður svo haldið á ísafirði daginn eftir. Fyrirlesarar koma frá Umhverfisstofnun, …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Atvinnumálanefndir Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar boða sameiginlega til almenns kynningar- og upplýsingafundar um mögulega olíuhreinsistöð í Hvestudal í Arnarfirði. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu á Patreksfirði mánudaginn 18. febrúar 2008 kl. 20:30. Hilmar F. Foss framkvæmdastjóri Íslensks hátækniiðnaðar ehf. mun vera með framsögu um olíuhreinsitöðvar og svarar fyrirspurnum. …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Í pistli sínum á vef þessum birtir Jörundur Garðarsson áhyggjur sínar af því að elsti hluti byggðar á Bíldudal, um og yfir aldar gamall, verði fyrir menningartjóni þegar hluti þess svæðis verður „ruddur“ fyrir snjóflóðavarnargarð. Þarna er um að ræða mjög heilstæða mynd af því hvernig Bíldudalur …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hið árlega Sólarkaffi Arnfirðunga verður haldið sunnudaginn 17. febrúar í sal Ferðafélags Íslands Mörkinni 6 og hefst kl. 15.00. Girnilegt kökuhlaðborð og nýbakaðar pönnukökur. Miðaverð 1000 kr. frítt fyrir 12 ára og yngri.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Það stefnir í mjög góða þátttöku á þorrablótinu. Í samtali við Ásdísi Snót, formann slysavarnardeildarinnar, þá er vel á annað hundrað manns komnir á listann en síðustu forvöð eru að skrá sig því listar verða teknir niður á morgun. Eins og alþjóð veit þá eru það hinir landsfrægu Farfuglar sem leika fyrir dansi en ball með þeim svíkur ekki. Margir brottfluttir munu ætla að koma og má reikna með mörgum í Baldri á föstudaginn en Sæferðir veita 40% afslátt fyrir þorrablótsgesti.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Þorrablót Slysavarnadeildar kvenna Bíldudal verður haldið laugardaginn 9. febrúar 2008 í Baldurshaga. Húsið opnar kl. 20:00 en skemmtunin hefst kl. 20:30. Aldurstakmark er 18 ár og miðaverð er 5000.- kr.
Hin margrómuðu skemmtiatriði verða á sínum stað og stórsveitin Farfuglarnir, mun sjá um að dansinn duni frameftir nóttu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur ákveðið að Perlufiskur ehf á Patreksfirði fái byggðakvótann sem eyrnamerktur var Bíldudal. Samtals fær fyrirtækið 239 þorskígildistonn til vinnslu og uppbyggingar atvinnulífs á Bíldudal. Fjórir aðilar höfðu sótt um að fá byggðakvótann sem úthlutað hafði verið til fiskvinnslunnar Stapa á Bíldudal, en hún hætti starfsemi í haust.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Frá því var sagt á Tíðis að golfspilarar og þeir sem að hafi áhuga á golfi, hafi nú ástæðu til að gleðjsat. Sunnudaginn 20. janúar mun Glofklúbbur Patreksfjarðar hefja æfingar í Íþróttamiðstöðinni Bröttuhlíð. Þar verður hægt að æfa sveifluna og slá bolta í net. Golfarar eru beðnir um að taka kylfurnar sínar með en þeir sem eru byrjendur og vilja fá að prófa og fikra sig …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Það var skroppið vestur, gengið um í húmi morguns, komið við á stöku stað. Þar var ég gestur með auga úr gleri, og stafrænt var vistað sem upplifun gaf.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fréttamaður Tíðis kom við í smiðjunni á Vatneyri í vikunni og náði tali af Ólafi Engilbertssyni sýningahönnuði og Öldu Davíðsdóttur yfirsjóræningja. Ólafur var kominn vestur til að skoða húsið og mun í framhaldinu hefjast handa við hönnun sýningarinnar sem sett verður upp á næstunni. Það var hugur í þeim og tjáðu þau fréttamanni að nú …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Vestfirðingur ársins 2007 samkvæmt vali lesenda fréttavefjarins bb.is er Arna Sigríður Albertsdóttir, 17 ára nemi við Menntaskólann á Ísafirði, sem slasaðist alvarlega í skíðaslysi í Geilo í Noregi 30. desember 2006. Hún fékk nær 25% greiddra atkvæða. Arna Sigríður, sem lamaðist fyrir neðan mitti, hefur sýnt mikla þrautseigju, jákvæðni og styrk þrátt fyrir að vera bundin við hjólastól. „Hún er góð fyrirmynd og …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Aldrei fór ég suður – Rokkhátíð alþýðunnar fékk Eyrarrósina, sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Eyrarósin var afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Rúnar Óli Karlsson, einn forsprakka rokkhátíðarinnar, var að vonum ánægður en hann …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Foreldrafélag Bíldudalsskóla hefur gefið út á DVD, ýmislegt efni frá Bíldudalsskóla. Safnið samanstendur af 17 diskum og spannar tímabilið frá árinu 1986 og fram til ársins 2006. …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú um áramót breyttist starfsvettvangur Bolvíkingsins Einars Kristins Guðfinnssonar. Fyrir áramót var hann ráðherra tveggja ráðuneyta, sjávarútvegs- og landbúnaðar. Nú hafa þau verið sameinuð í eitt ráðuneyti og heitir það Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Þannig mun Einar Kristinn nú hlúa að, með meiri yfirsýn yfir þessa tvo málaflokka á skrifstofu hins nýja embættis að Skúlagötu 4.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Ísland er á lista alþjóðlegs fagfyrirtækis um olíuhreinsistöðvar, þar sem fram koma áform Íslensks hátækniiðnaðar og Katamag-Nafta, að reisa olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Fyrirtækið Hydro Carbon publishing Company, með heimilisfang í Ameríku, virðist vera fagfyrirtæki sem safnar upplýsingum um olíuhreinsistöðvar um víða veröld og er með heimasíðu á netinu. Í upphafi ársins 2007 voru 102 …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Ísafjarðarbær fær tæpar 187 milljónir króna úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga á næsta ári. Sveitarfélagið Skagafjörður fær langmest allra sveitarfélaga eða 235 milljónir króna. Í fyrra fékk ísafjarðarbær næstmest en nú er hann í 3. sæti á eftir Fljótsdalshéraði, sem fær tæpar 200 milljónir. Vesturbyggð fær …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á hvorum staðnum sem valinn yrði undir olíuhreinstöð er augljóst að aðflutningur á fólki yrði óhjákvæmilegur og allmikill. Því eins og það er orðað í skýrslu Háskólans á Akureyri að „þegar tekið sé tillit til fjarlægðar frá vinnustað komi í ljós að vinnusóknaraðlagaður vinnumarkaður sé 150 ársverk fyrir Hvestu, en 300 …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hvað þarf til að lokka starfsmann búsettann á Ísafirði til að vinna í olíuhreinsistöð sem staðsett væri að Hólum/Söndum í Dýrafirði? Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri hefur reiknað út að það þyrfti að greiða starfsmanni búsettum á Ísafirði allt að 90-100 þús. kr meira á mánuði en starfsmanni búsettum á Þingeyri. Starfsmaður staðsettur á Ísafirði sem ekur til Hóla/Sanda, notar í það …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Talsverð fækkun íbúa hefur verið í þremur stærstu sveitarfélögunum á Vestfjörðum síðasta áratuginn samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Íbúar Ísafjarðarbæjar voru 3.963 þann 1. desember síðastliðinn og hafði þá fækkað um 10% frá árinu 1997 þegar þeir voru 4.395 talsins. Íbúum í Bolungarvík fækkaði á sama tímabili um liðlega 17%, voru 1.094 fyrir áratug en 904 í upphafi mánaðarins. Í Vestur …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Þeir brostu úr að eyrum Bíldudalskarlarnir 33 sem mættu í Kænuna á laugardaginn, þegar þeir fundu ilmandi skötulyktina í loftinu. Skatan var vel kæst og girnileg og að sjálfsögðu var boðið upp á vestfirskan hnoðmör með góðgætinu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Jón Hákon Ágústsson bæjarfulltrúi í Vesturbyggð lýsir yfir í bloggi á vef sveitarfélagsins, þeirri skoðun sinni að það sé lífsspursmál fyrir sunnanverða Vestfirði að fyrirhuguð olíuhreinsistöð rísi í Hvestu í Arnarfirði. Þar segir hann meðal annars …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Áberandi hefur verið í fréttum undanfarinna ára að bæjarstjórnir hinna ýmissu sveitarfélaga hafa keppst um að fá til sín starfsemi af einhverju tagi. Sjálfsagt er það líka skylda þeirra að halda sjó. Ekki síst á það við um sveitarfélög sem standa höllum fæti, hvað þá þeim sem ramba á brúninni. „Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Staðarvalsskýrsla vegna hugsanlegrar olíuhreinsistöðvar á Vestfjörðum er nú opinber. Hún var unnin af Tækniþjónustu Vestfjarða á Ísafirði að beiðni Fjórðungssambands Vestfjarða. Þar eru dregnar fram staðreyndir sem eiga að skipta máli varðandi staðarval hugsanlegra olíuhreinsistöðvar. Vonandi verður skýrslan gagnleg áfram …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Telja má að mikil straumhvörf hafi orðið hjá yfirstjórn Ísafjarðarkaupstaðar frá þeim degi þegar á þeim bæ var líst yfir að aldrei yrði reist stóriðja á þeirra umráðasvæði. Slíkt mætti ekki gerast. Á þeim tíma hafði líklega enginn trú á því að stóriðja yrði í boði fyrir vestfirðinga og myndu þeir þar af leiðandi aldrei standa frammi fyrir því að segja nei takk, enga stóriðju hér. Undraskjótt breytast svo aðstæður …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Miðvikudaginn 12. desember nk. munu þau Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari og Monika Abendroth hörpuleikari halda tónleika í Patreksfjarðarkirkju ásamt kirkjukór Patreksfjarðarkirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er aðgangur ókeypis eins og venja hefur verið á …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Laugardaginn 22. desember ætla Bíldudalskarlar að hittast í hádeginu á Kænunni í Hafnarfirði og fá sér skötu. Þar sem skata er ekki á matseðlinum þennan dag þá er nauðsynlegt að láta skrá sig svo hægt sé að gefa upp hvað margir koma. Vinsamlegast skráið ykkur hjá Gumma Bjarna í síma 862 4289
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Föstudaginn 7. desember ráðstafaði Menningarráð Vestfjarða 20 milljónum króna til 52 verkefna tengdum menningarmálum á Vestfjörðum. Hæstu styrkina hlutu Skrímslasetrið á Bíldudal og Sjóræningjar ehf. á Patreksfirði að upphæð 1,5 milljón hvert um sig. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Náttúrugripasafninu í …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á vef Tálknafjarðar segir frá því að mikil ásókn sé í byggðakvóta Bíldudals. Segir þar einnig að fjögur fyrirtæki hafi sótt um byggðakvótann sem ætlaður er til vinnslu á Bíldudal. Bæjarráð Vesturbyggðar boðaði til fundar við forsvarsmenn fyrirtækjanna í gær og í fyrradag. Þeir sem …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Handverksfélagið Bót og jólahúsið Svalborg bræða saman góða stemningu og stuðla að ljúfri aðventu og gleðilegum jólum. Opið verður laugardagana 8. og 15. desember í Jólahúsinu Svalborg frá kl:14:00 – 17:00. Margt í boði: …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á heimasíðunni Matarlist.is má sjá að ungur kokkur frá Bíldudal, hún Vigdís Ylfa Hreinsdóttir, var valinn kokkur mánaðins af starfsfólki heimasíðunnar. Það vakti athygli fréttamanns Tíðis að Vigdís Ylfa er fyrsta konan til að verða fyrir valinu sem kokkur …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Kynningarfundur um snjóflóðavarnir á Bíldudal verður haldinn í félagsheimilinu Baldurshaga föstudaginn 29. nóvember 2007 kl. 18:00. Eftirtaldir aðilar kynna stöðu mála...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Trú, von og kærleikur er yfirskrift tónleika sem bílddælski söngvarinn Bjarni Þór heldur í Laugarneskirkju í Reykjavík þann 7. Desember nk. kl: 20:30. Á tónleikunum flytur Bjarni Þór eigin lög auk sálma og laga með trúarlegu ívafi. Bjarni Þór hélt tónleika með sama nafni á Bíldudals grænum í sumar og vöktu tónleikarnir verðskuldaða athygli.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Síðastliðinn laugardag hittust „Bíldudalskarlarnir“ á Kænunni á Hafnarfirði. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem það gerðist, heldur er hún að verða föst venja hjá mörgum, þessi „Bíldudalskarlasamkoma“, sem hefur verið bundin við síðasta laugardag hvers mánaðar. Þennan laugardag var vel mætt að venju og …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú á laugardaginn 24. nóvember verður hittingur í Kænunni Hafnarfirði, frá kl 10 -12. Í Kænuna mætir einnig Hilmar Foss, en hann er einn aðstandenda fyrirhugaðrar olíuhreinsistöðvar og segir frá verkefninu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á vef Tálknafjarðar segir frá því að í gær hafi hafist vinna við stærðarflokkun og sokkun á eins árs gamalli bláskel í Tálknafirði. Sokkun er það kallað þegar skelin er sett í netsokka og þannig er tryggt að skelin detti ekki af línum og þessi aðferð bætir einnig vöxtinn. Sokkuð skel …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
„Nú er búið að skipa afmælisnefnd vegna 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar, það fyrsta sem þeir eiga að gera er að friðlýsa Arnarfjörð“ segir Hilmar Einarsson eigandi Hringsdals í Arnarfirði í helgarviðtali í Fréttablaðinu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Í dag laugardag verður vinnudagur hjá Björgunarsveitinni Kópi þar sem klæða á nýtt hús sveitarinnar. Slysavarnardeildin ætlar að bjóða uppá kaffi og bakkelsi. Um kvöldið verður mikil stemming þegar ást og friður fá að fljóta yfir vötnum á hippakvöldi sem haldið verður af félögunum tveimur í Baldurshaga.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Kræklingarækt er hafin í Ísafjarðardjúpi og hefur í því sambandi verið stofnað félagið Vesturskel ehf. Búið er að leggja línur sem nemur 12 kílómetrum í Skötufirði og Hestfirði og er búist við að magnið sem myndast á þeim muni þrefaldast á næstu árum. „Iðnaðurinn er mjög vaxandi í heiminum. Ný-Sjálendingar eru mjög …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Eins og margir vita var stofnað handverksfélag á Bíldudal í fyrra undir nafninu Bót. Sumarið 2006 var félagið með sölu á handverki í gömlu Jónsbúðinni en nú höfum við fengið varanlega aðstöðu í Svalborginni. Í vetur höfum við verið að …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Veiðar erlendra ferðamanna í sjó teljast veiðar í atvinnuskyni en ekki tómstundaveiðar, samkvæmt frumvarpi sem sjávarútvegsráðherra kynnti ríkisstjórn í gær. Síðustu ár hefur hins vegar færst í vöxt að bjóða ferðamönnum, sérstaklega erlendum, að veiða á sjóstöng. Þær veiðar...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Miðvikudaginn 7. nóvember voru tímamót hjá Kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal. Þann dag var útskipað 320 tonnum af fullunnum afurðum. Það var því sönn hátíðarstund hjá þeim „Kalkþörungum“, því þetta var í fyrsta skipti sem skipað er út fullunum afurðum úr verksmiðjunni. Í tilefni dagsins sló vertinn á Vegamótum, …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Strandabyggð hefur bæst í hóp þeirra sveitarfélaga sem styðja við bakið á Hafstraumum um að skora á stjórnvöld að tryggt verði fjármagn þannig að ljúka megi uppbyggingu Vestfjarðarvegar 60 innan sex ára. Eins og greint hefur verið frá stóðu ungir menn ættaðir af Vestfjörðum fyrir tónleikum á …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bæjarráð Bolungarvíkur skorar á stjórnvöld að ljúka uppbyggingu Vestfjarðavegar 60 innan sex ára. Áskorunin var samþykkt á bæjarráðsfundi 1. nóv. í tilefni af tónleikum Hafstrauma sem haldnir yrðu í Reykjavík sama kvöld. Umfangsmiklar …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Frumuðirnir í Hafstraumum sem ættu að vera Patreksfirðingum og fleiri vestfirðingum góðkunnugir taka nú höndum saman og efna til stórsöfnunar þar sem safnað er fyrir hvorki meira né minna góðum Vestfirskum vegum. Tónleikar verða...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Öllum 12 starfsmönnum fiskvinnslunnar Stapar ehf. á Bíldudal, 9 konum og 3 körlum, var sagt upp störfum í dag. Flestir hafa eins mánaðar uppsagnarfrest. Fiskvinnslan sem hóf rekstur í maí síðastliðnum hefur glímt við rekstrarerfiðleika frá byrjun, bæði vegna …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Breytt staðsetning Haustfagnaðs 3. nóvember 2007 !! Kæru félagsmenn. Vegna óviðráðanlegra ástæðna verðum við að færa Haustfagnaðinn í annan sal. Ný staðsetning er: Salur Félags eldri borgara að Stangarhyl 4, 110 Reykjavík ( á 2. hæð)
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa undanfarið unnið að útgáfu á alhliða ferða- og útivistarkortum fyrir Vestfirði og Dali. Á liðnu sumri komu fyrstu fögur kortin út sem ná yfir syðri hluta Vestfjarða frá Vesturbyggð, Reykhólasveit og syðri hluta Stranda auk Dalassýlu. Til stendur að þau þrjú kort sem vantar upp á til að dekka allan Vestfjarðakjálkann komi út snemma á næsta ári. Ferðakort Ferðamálasamtaka Vestfjarða sem hefur verið ..........
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Það var fjölmennt og létt yfir Bíldudalskörlum á Kænunni í morgun. 20 manns mættu á staðinn og var skeggrætt um fjörðinn fagra, landið og heimsmálin. Sú skemmtilega hugmynd var viðruð...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Sjónvarpsþættirnir Willtir Westfirðir eru tilnefndir til Edduverðlauna sem besti frétta- og/eða viðtalsþátturinn í ár. Um er að ræða þætti um villta náttúru Vestfjarða, mannlíf, menningu og matargerð undir berum himni. Í þeim er ferðast um land, sjó og loftin blá frá Látrabjargi að Hornströndum auk Reykhólasveitar og Strandasýslu. Meðal annars...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Til stendur að einangra og klæða nýja húsið okkar að innan og af því tilefni höfum við ákveðið að hafa vinnudag 17. nóvember. Við viljum biðja alla sem vettlingi geta valdið að aðstoða okkur við þetta verk, íbúa Bíldudals jafnt sem brottflutta. Slysavarnarkonur munu sjá um að hafa eitthvað gott með kaffinu. Sýnum...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú á laugardaginn ætla Bíldudalskarlarnir að hittast aftur í Kænunni í Hafnarfirði. Síðast mættu 18 karlar og var mikið fjör og er nokkuð ljóst að þessi tími frá 10 -12 á laugardögum er heppilegri en fimmtudagstíminn. Við skorum á alla að mæta og heilsa upp á gamla félaga, spjalla og njóta þess að vera í góðra vina hópi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í endurbyggingu á um 6,1 km kafla Vestfjarðavegar (60) um austanverðan Þorskafjörð, á milli Hofstaðavegar og Þorskafjarðarvegar. Frestur til að skila tilboðum er til 6. nóvember. Samkvæmt útboðsgögnum á útlögn klæðningar að vera lokið 1. september 2008, en verkinu að fullu lokið fyrir …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Um síðustu helgi var enn á ný mættur hópur sjálfboðaliða á þak Skrímslasetursins á Bíldudal. Skipt var um sperrur á stórum hluta þaksins og settur tjörupappi. Ekki náðist að járna í þetta skiptið og er því stefnt að annarri ferð fljótlega og tekst þá vonandi að ljúka viðgerð á þaki.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Um næstu helgi verður farið í vinnuhelgi til Bíldudals að gera upp þakið á Skrímslasetrinu. Þetta er þriðja ferðin sem farin er vestur í haust og hefur stemningin í ferðunum verið engu lík. Þetta vinnuframlag sjálfboðaliða er ómetanlegt og sýnir samtakamátt okkar Arnfirðinga þegar mikið liggur við. Þetta framlag getur gert gæfumunin á hvort skrímslasetrið komist upp eða ekki.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Karlarnir frá Bíldudal er hópur sem hefur hist fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði í talsverðan tíma. Samkomustaðurinn hefur verið Gallery fiskur í Nethyl kl. 12:00. Þessi tími hefur ekki hentað öllum og oft hefur verið erfitt að fá sæti fyrir alla. Nú hefur verið ákveðið að breyta um stað og stund í kl. 10:00 á laugardögum og staðurinn er Kænan í Hafnarfirði. Nú á laugardaginn 29. september ætla menn að hittast í Kænunni í fyrsta sinn fá sér kaffi og spjalla. Allir velkomnir.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Kvenfélagið Framsókn á Bíldudal var gestjafi aðalfundar kvenfélaga á Vestjarða 15. sept. Aðalfundir eru haldnir til skiptis í aðildarfélögunum. Í sambandinu eru 14 kvenfélög á svæði sem nær frá Barðaströnd að Djúpi. Una María Óskarsdóttir flutti fundarmönnum erindi um aukna hreyfingu og bætt matarræði. Einnig flutti Hilmar Foss, …
video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, lýsir yfir furðu sinni á afgreiðslu minnihlutans á ályktun sem bæjarstjórn samþykkti um losunarkvóta koltvísýrings. Í grein sem birtist á bb.is í morgun spyr Birna hvort minnihlutinn vilji ekkert meira um olíuhreinsistöð fjalla. „Á bæjarstjórnarfundinum lagði Gísli H. Halldórsson, bæjarfulltrúi D-lista fram tillögu að ályktun bæjarstjórnar vegna …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Úlfar B. Thoroddsen, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir úrbótum á vegaframkvæmdum í Barðastrandarsýslum. Haft var eftir Úlfari í fréttum Ríkisútvarpsins að það sé óviðundandi með öllu , að á tuttugustu og fyrstu öldinni, séu vegirnir eitt forarsvað. Frá Patreksfirði til Reykjavíkur er 85 …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Stór hópur skrímslaáhugamanna byrjaði á síðasta laugardagsmorgun að skipta um þak á gömlu „Matvælaiðjunni“ á Bíldudal. Þegar vinnu lauk á sunnudegi höfðu alls 33 einstaklingar komið að verkinu með einum eða öðrum hætti.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Aðstandendur Skrímslaseturs á Bíldudal og velunnarar þess munu vera með vinnuhelgi dagana 1.–2. sept. nk. Ætlunin er að vinna frá kl. 8–18 á laugardag og kl. 9–15 á sunnudag. Þeir sem sjá sér fært að leggja hópnum lið eru hjartanlega velkomnir með hamarinn. Á laugardeginum...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Föstudaginn 31. ágúst er Valgerður BA-45 væntanleg til Patreksfjarðar. Útgerðarfélagið Skriðnafell ehf er eigandi bátsins sem er 63,7 bt. dragnótarbátur og mun gerður út frá Patreksfirði. Óskar H. Gísla…
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Að mati Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi, sýnir nýútkomin skýrsla Byggðastofnunar um svæðisbundin hagvöxt það svart á hvítu að landsbyggðin er að dragast aftur úr höfuðborgarsvæðinu. Í skýrslunni kemur fram að hagvöxtur á Vestfjörðum var á árunum 1998-2005 neikvæður um …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Viljayfirlýsing milli Vesturbyggðar og fyrirtækisins O ehf., um samstarf á átöppun og útflutningi vatns frá Patreksfirði hefur verið afturkölluð. Á bæjarráðsfundi á miðvikudag var tekið fyrir bréf frá O ehf., þar sem skýrt er frá því að grundvöllur rekstrar átöppunarverksmiðju við borholu á Patreksfirði sé brostinn. Ástæðan er … video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Ákveðið hefur verið að efna til umhverfisverðlauna í Vesturbyggð og veita verðlaun í þremur flokkum, snyrtilegastu lóð við íbúðarhús, snyrtilegasta lögbýlið og snyrtilegasta fyrirtækið. Íbúum gefst kostur á að tilnefna fallegasta garðinn, snyrtilegasta lögbýlið og snyrtilegasta fyrirtækið á heimasíðu Vesturbyggðar á …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Samtök atvinnulífsins segir, að verði olíuhreinsistöð byggð hér á landi muni hún þurfa að uppfylla ákvæði mjög umfangsmikilla lagabálka bæði á undirbúnings- og framkvæmdatíma og eins þegar sjálfur reksturinn hefst. SA segja á heimasíðu sinni, að …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fyrstu nemar framhaldsskóladeildarinnar á Patreksfirði fóru í dag til Grundafjarðar og hefja þar nám sitt í Fjölbrautarskóla Snæfellinga á morgun. Við brottför afhendu Lionsmenn hverjum nemanda í fullu námi 20.000 kr. sem ætlað er til …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
„Mér finnst það lýsa því best hve óljósar þessar áætlanir eru að formælendur þessara fyrirtækja skuli miða við lægstu mögulegu gildi varðandi losun gróðurhúsalofttegunda þegar allir sem hafa kynnt sér málið vita að losun gróðurhúsalofttegunda getur verið miklu meiri," segir Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra vegna …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Vegagerð í Þorskafirði verður boðin út í haust en ekkert bólar á þverun Þorskafjarðar. Gísli Eiríksson umdæmisstjóri Vegagerðarinnar segir að þverun fjarðarins sé ekki komin á fjögurra ára vegaáætlun og því verði einhver bið á framkvæmdum við hana. Í haust verða framkvæmdir við bundið slitlag boðnar út. Um er að ræða …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti í dag að breyta skipulagsmálum í sveitarfélaginu, sem leyfir byggingu olíuhreinsistöðvar í landi Hvestu í Arnarfirði. Viljayfirlýsing um landakaup þar undir hreinsistöð liggur fyrir. Í morgun barst forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar bréf frá Íslenskum Hátækniiðnaði þar sem þess var farið á leit að bæjarstjórnin staðfesti vilja sinn til …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Félag áhugamanna um skrímslasetur á Bíldudal leitar að sjálfboðaliðum í vinnuferð til Bíldudals helgina 31.ágúst - 2. sept. Félagið hefur fest kaup á Matvælaiðjunni undir skrímslasetrið sem stefnt er að opna vorið 2008. Þakið á húsinu er orðið þreytt og …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Forathugunum vegna væntanlegrar olíuhreinsistöðvar við Hvestu í Arnarfirði og við Sanda og Hóla í Dýrafirði, lýkur í september. Nú er Náttúrustofa Vestfjarða að skoða náttúrufar á landsvæðunum sem um ræðir og í september verða firðirnir dýptarmældir. Kostnaður Fjórðungssambands Vestfirðinga vegna athugananna er á áttundu milljón króna. Vonir standa til að ríkisvaldið greiði fjórðungssambandinu síðar þessa upphæð. Anna …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Tökum á stuttmynd sem byggð er á einu Grimms ævintýranna lauk nýlega, en myndin var tekin upp í Arnarfirði. Myndin heitir Harmsaga og á Vísisvefnum segir að myndin sé ævintýradrama fyrir fullorðna með drungalegu ívafi. Leikstjóri er …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á vef Vesturbyggðar er pistill eftir Ragnar Jörundsson, bæjarstjóra Vesturbyggðar um umhverfi og áhrif olíuhreinsistöðvar. Ástæðu pistilsins segir Ragnar vera neikvæða umræðu sem virðist vera að fara á flug og því tilefni til upplýsingar um staðreyndir, um olíuhreinsistöðvar svipaðar þeirri sem hugsanlega …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bílddælingurinn Gísli Ægir Ágústsson er kominn í úrslit í leitinni að stuðboltanum 2007 á Rás 2. Úrslitin verða á föstudaginn kl. 11:00 Það er til mikils að vinna fyrir sigurvegarann, fjöldi veglegra vinninga og að auki fær sigurvegarinn að koma fram á Þjóðhátíðinni í Eyjum. Arnfirðingur óskar Gísla velfarnaðar á föstudaginn og hvetur Arnfirðinga og aðra til að hlusta á Rás 2 á föstudaginn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hjá Mogomusic í Ólafsfirði er komin út geislaplatan Dyggðirnar sem inniheldur 15 lög eftir Þórarin Hanneson en textar eru eftir Herdísi Egilsdóttur. Textarnir eru úr bókunum Betri skapgerð sem Listfengi ehf gefur út og eru m.a. notaðar í mörgum af grunn- og leikskólum landsins.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á því hefur borið að margir séu reiðir vegna ákvörðunar Samgönguráðuneytisins og / eða Vegagerðarinnar, að fara í vegagerð inn með sunnanverðum Þorskafirði, í stað þess að þvera Þorskafjörðin eins og lengi hefur verið rætt um - og flestir litið á sem spurning um tíma en ekki hvort. Því hafa ýmsir litið svo á að fyrrnefnd vegagerð inn með Þorskafirði, þýði í raun …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Tálknafjör fer fram á Tálknafirði helgina 27.-28. júlí.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Þann 26.-29. júlí næstkomandi verður aftur haldin gönguhátíð á sunnanverðum Vestfjörðum. Gönguferðirnar, leiksýningarnar og uppákomurnar féllu í góðan jarðveg hjá bæði heimamönnum og gestkomandi á síðasta ári en þá var hátíðin haldin í fyrsta sinn. Því mætum við aftur til leiks með nokkrar nýjar leiðir og nýjar uppákomur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar..., sem nú er nýafstaðin, heppaðist afar vel og hafa fjölmargir gesta haft samband við aðstandendur og lýst yfir ánægju sinni með hátíðina. Myndir frá hátíðinni eru nú komnar á vefinn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Undir merki Bíldudals grænar... hér til hægri á síðunni eru ítarlegar upplýsingar um fjölskylduhátíðina ásamt nýútkomnu hátíðarlagi sem flutt er af Farfuglunum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Forsætisráðherra skipaði í dag [17. júní] nefnd til að undirbúa hvernig minnast eigi þess að 17. júní 2011 verða liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta. Nefndinni er ætlað að gera fyrstu tillögur eigi síðar en í árslok 2008 en vinna síðan að undirbúningi hátíðarhalda á árinu 2011. Nefndin leiti enn fremur …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Á föstudeginu á Bíldudals grænum .... verður fótboltamót á Völuvelli. Mótið er öllum opið 16 ára og eldri og er hægt að skrá lið eða skrá sig sem einstaklingur á arnfirdingur@arnfirdingur.is Keppt verður í 6 manna liðum og verða búin til lið úr þeim sem skrá sig sem einstaklingar en einnig má bara mæta og skrá sig á staðnum. Heyrst hefur að margir frægir ÍFB kappar ætli að mæta og gaman verður að sjá hvort menn hafi einhverju gleymt.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Farfuglunum var í ár falið að semja hátíðarlag fyrir Bíldudals grænar. Um helgina fóru meðlimir Farfuglanna í sumarbústað og tóku upp hátíðarlag. Upptökur stóðu í einar sex klukkstundir en lagið er núna í hljóðvinnslu og verður því verður dreift á netinu um leið og henni lýkur sem verður væntanlega nú í vikunni.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
 Fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar… er haldin annað hvert ár og er nú haldin í þriðja sinn í sumar þann 29. júní til 1. júlí 2007 á Bíldudal. Hátíðin hefur þá sérstöðu að Arnfirðingar sjá sjálfir um öll skemmtiatriði enda er hátíðin liður í því að viðhalda þeirri miklu menningar-, lista- og sagnahefð sem …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Arnfirðingafélagið og Eagle fjord á Bíldudal hafa gert með sér samkomulag um leigu á íbúðum fyrir félagsmenn. Þetta er annað árið sem félagið býður félagsmönnum uppá leiguíbúðir á Bíldudal. Íbúðin sem félagið hafði í fyrra hefur nú verið seld og að auki missti félagið búslóðina í brunanum í Tréverki í vor og tók því þá ákvörðun að leigja íbúðir af Eagle fjord.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Borist hafa heillaóskir til Bílddælinga og íbúa Vesturbyggðar frá séra Jakobi Ágústi Hjálmarssyni í tilefni vígslu kalkþörungaverksmiðjunnar.
Til hamingju Bílddælingar og íbúar Vesturbyggðar 28. apríl var góður dagur og þökk þeim sem til hamingjuefnis hans stofnuðu og unnu að. Bíldudalur hefur með opnun kalkþörungaverksmiðjunnar fengið þá ballest í atvinnulífið ...........
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Laugardaginn 28. apríl var kalkþörungaverksmiðja Íslenska Kalkþörungafélagsins ehf. formlega opnuð af sjávarútvegsráðherra Einari Kristni Guðfinnssyni. Sjá meðfylgjandi grein Einars Kristins sem hann skrifaði í tilefni opnunarinnar. Þegar verðmæti verða til .. ......
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Elvar Logi Hannesson frumsýndi einleik sinn Skrímsli á Bíldudal á sumardaginn fyrsta. Góður rómur var gerður að sýningunni og frumsýningargestir ánægðir með verkið. Í hófi eftir sýninguna kynntu aðstandendur Skrímslaseturs á Bíldudal merki setursins og greindu frá stöðu mála. Margt góðra gesta voru viðstaddir sýninguna þar á meðal Einar Kristinn sjávarútvegsráðherra. Hér á eftir fer grein sem Einar skrifaði um sýninguna. …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Kómedíuleikhúsið frumsýnir einleikinn Skrímsli í Baldurshaga á Bíldudal á sumardaginn fyrsta, 19. apríl. Mun þetta vera í annað sinn sem atvinnnuleikhús frumsýnir á Bíldudal, en áður hefur Kómedíuleikhúsið frumsýnt þar einleikinn um Mugg. Frá örófi alda hafa skrímsl af ýmsum toga reglulega sést í sjó og vötnum á Íslandi. Strax í Landnámu er getið sjávar- og …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Grímuball verður haldið í Baldurshaga á Bíldudal eftir miðnætti á föstudaginn langa.
Viðar og Matti munu leika fyrir dansi 16 ára aldurstakmark Veglegir vinningar í boði fyrir …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Opinn fundur verður haldinn með íbúum á Bíldudal, miðvikudaginn 28. mars 2007 í félagsheimilinu Baldurshaga kl. 20:00. Fundarefni: • Yfirfarnar innsendar athugasemdir við deiliskipulag. Byggingarfulltrúi Vesturbyggðar, Bjarni Þór Einarsson mætir og fer yfir athugasemdirnar • Atvinnuhorfur í fiskvinnnslu á Bíldudal. Fulltrúar frá Odda hf. og …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fiskvinnslan Oddi á Patreksfirði hefur keypt bát og kvóta útgerðarfélagsins Bjargs á Patreksfirði. Um er að ræða vélbátinn Brimnes, sem er 80 tonn að stærð, og aflaheimildir upp á tæplega 400 þorskígildistonn. Kaupverð er tæplega 800 miljónir. Þar með …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hálf bílddælska stuðbandið „Hljómsveit Hússins“ leikur fyrir dansi á Classic Rock í Ármúla 5 í Reykjavík laugardagskvöldið 17. mars. Hljómsveitin lék á síðustu Grænu bauna hátíð við mikinn fögnuð og þeir félagar hafa þegar tilkynnt komu sína á hátíðina í sumar. Hljómsveitina skipa: …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Staða slökkviliðsstjóra í Vesturbyggð hefur verið auglýst laus til umsóknar. Starfslýsing: Yfirumsjón og ábyrgð á daglegum rekstri Brunavarna Vesturbyggðar. Yfirstjórn slökkvistarfs við eldsvoða og mengunaróhappa á landi. Um er að ræða hlutastarf allt að 50%.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
 Fjölskylduhátíðin Bíldudals grænar verður haldin helgina 29. júni til 1. júlí. Að vanda verður tónlist gert hátt undir höfði enda eru Arnfirðingar annálaðir fyrir góðan tónlistarflutning. Ef þú hefur hug á að skemmta á hátíðinni með hljóðfæraleik eða söng þá vinsamlegast sendu línu á Bjarna Þór, bjarni@ejs.is
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Kómedíuleikhúsinu hefur verið boðið að sýna einleikinn Gísla Súrsson á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Albaníu í vor. Um er að ræða einleikjahátíð sem ber heitið Albamono og er hún haldin í Korce í Albaníu. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin og er dagskrá hátíðarinnar fjölbreytt og einleikin. Það er því mikil viðurkenning fyrir …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Samgönguráðherra Sturla Böðvarsson var í heimsókn á Bíldudal í dag og skoðaði meðal annars Kalkþörungaverksmiðjuna. Nú er unnið að stillingum og prufukeyrslu tækja og tóla í verksmiðjunni en reiknað er með að í næstu viku verði verksmiðjan gangsett. Nú þegar er búið að framleiða fyrstu kílóin en gert er ráð fyrir að framleiða um 10 til 15 þúsund tonn á …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Sólarkaffi Arnfirðinga verður haldið Konudaginn 18. febrúar kl. 15.00 í sal Ferðafélagsins Mörkinni 6 Reykjavík. Rjúkandi pönnukökur og aðrar girnilegar kræsingar á borðum. Fjölmennum og fögnum hækkandi sól.
Nefndin.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú þegar lok eldisverkefnis Hafrannsóknarstofnunarinnar blasa við, birtist í Morgunblaðinu ágæt úttekt á því merka verkefni. Þetta þróunarverkefni þar sem horft hefur verið til framtíðar með nýjum og spennandi hætti, hefur þó ekki átt fylgi að fagna allstaðar og beinlínis verið unnið gegn því. Þau öfl …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Laugardaginn 3. febrúar verður þorrinn blótaður á Bíldudal en þá heldur Slysavarnardeild kvenna Bíldudal sitt árlega þorrablót. Í fyrra var metþátttaka en núna stendur til að slá það met. Gleðisveitin Farfuglarnir munu leika fyrir dansi og að sjálfsögðu verða skemmtiatriðin á sínum stað. Húsið opnar kl. 20:00 en dagskráin hefst kl. 20:30 og aldurstakmark er 18 ár.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Hafísspöng var landföst í mynni Arnarfjarðar í gær og talið er mjög líklegt að ís reki inn á Vestfirði í dag. Veðurstofan sendi frá sér viðvörun síðdegis í gær og benti á nálægð hafíss skammt undan Vestfjörðum. Siglingaleiðir á þeim slóðum voru sagðar geta verið mjög varasamar og jafnvel lokaðar litlum bátum. Jón Þórðarson á Bíldudal, sem m.a. sér um vefinn www.bildudalur.is, ók út í Selárdal við Arnarfjörð og tók myndir …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Fyrirtækið Villimey slf., sem er í eigu Aðalbjargar Þorsteinsdóttur á Tálknafirði, hefur nú fengið alþjóðlega vottun Vottunarstofunnar Túns til sjálfbærrar söfnunar á villtum íslenskum plöntum. Vottunin nær til tæplega 80 ferkílómetra landsvæðis í Tálknafirði og Arnarfirði og mun Villimey slf. mun nýta villtar plöntur af svæðinu til fjölþættrar framleiðslu á lífrænum heilsuvörum, græðikremum og snyrtivörum. Vottorð þessu …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Sjávarútvegsfyrirtækin Oddi hf á Patreksfirði og Þórsberg ehf. í Tálknafirði, ásamt tengdum fyrirtækjum, hafa ákveðið að stofna og hefja rekstur sjávarútvegsfyrirtækis á Bíldudal. Grundvöllur stofnunar fyrirtækisins byggir á sameiginlegu átaki stjórnvalda, bæjarstjórnar Vesturbyggðar og fyrirtækjanna í samvinnu við ýmsa aðra aðila. Í tilefni þessara tíðinda er flaggað á Bíldudal í dag, biðin er á enda og nú horfum við björtum augum á framtíðina þar sem hjól atvinnulífs fara á fullan snúning innan tíðar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks í Vesturbyggð hafa mótmælt því harðlega að ráðinn hafi verið utanbæjarmaður í stöðu hafnarvarðar við Bíldudalshöfn, en sá mun hafa lögheimili í Ísafjarðarbæ. Vísa þeir til þess að forseti bæjarstjórnar, Úlfar Thoroddsen, hafi á sínum tíma mótmælt því þegar utanbæjarmaður var ráðinn í starf aðstoðaryfirlögregluþjóns á Patreksfirði. Bókun sjálfstæðismanna fer hér …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Nú stendur undirbúningur fyrir þorrablótið á Bíldudal sem hæst en það verður haldið laugardaginn 3. febrúar. Fyrir dansi mun leika arnfirska hljómsveitin Farfuglarnir sem nú æfa af krafti fyrir blótið. Meðfylgjandi myndir voru teknar í æfingahúsnæði sveitarinnar nú um helgina. Það má búast við hörku blóti og heyrst hefur af hópi manna og kvenna sem ætla að fara vestur og blóta þorra með heimamönnum. video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Kynningarfundur um starfsemi og áform vestfirskra stofnana í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi var haldinn í Skjaldborgarbíói þriðjudaginn 16. janúar. Fundurinn var mjög vel sóttur og umræður að loknum erindaflutningi mjög gagnvirkar. Fundurinn hófst á kynningu nemenda 9. bekkjar Grunnskóla Patreksfjarðar á verkefni sem nemendurnir unnu er þeir voru í 8. bekk og nefnist “Unglingalýðræði í sveit og bæ”. Nemendurnir fengu verðlaun fyrir verkefnið, ferð til …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Digital Ísland er að koma til Vestfjarða og sjónvarpssendingar þar verða framvegis í stafrænum gæðum. Vestfirðingar geta því notið enn fleiri útvarps- og sjónvarpsstöðva sem eru í boði 365.
Á næstu vikum fá áskrifendur á Vestfjörðum heimsókn frá þjónustufólki Mömmu …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Umhverfisráðuneytið hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar frá 28. febrúar 2006 um mat á umhverfisáhrifum Vestfjarðavegar nr. 60 á milli Bjarkarlundar og Eyrar í Reykhólahreppi, nema hvað varði leið B í 2. áfanga. Á hana er fallist með sex skilyrðum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Starfsmenn sem unnið hafa við uppsetningu tækja við kalkþörungaverksmiðjuna á Bíldudal, eru nú óðast að hrista af sér hátíðaværðina og takast nú á af fullum þunga við síðustu skrefin, sem telja má að séu í hillingum framundan. Síðustu hlutir í vélasamstæðuna …
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Í kvöld verður haldið hið árlega vísnakvöld í Baldurshaga í tuttugasta sinn. Mikill fjöldi listamanna hefur nú þegar skráð sig til leiks og eins og alltaf þá felast einhverjir nýir í hópnum sem eru að stíga sín fyrstu spor á listabrautinni. Vísnakvöldið er orðið ómissandi þáttur í menningarlífi Bílddælinga og eiga þeir einstaklingar sem fyrir þeim hafa staðið heiður skilið.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Flugeldamarkaður björgunarsveitarinnar Kóps verður opin sem hér segir:
Föstudaginn 29. desember frá kl. 17:00 – 19:00 Laugardaginn 30. desember frá kl. 13:00 – 18:00 Sunnudaginn 31. desember 12:00 – 13:00.
Flugeldarnir verða seldir í nýju húsnæði sveitarinnar að Hafnarbraut 12 (Gamla verkstæðinu hjá Gísla Matt.) Viljum við minna á að mörg mögnuð tilboð og úrval á tertum hefur aldrei verið meira. Björgunarsveitin Kópur þakkar einstaklingum og fyrirtækjum stuðninginn á árinu og óskar öllum friðar og farsældar á komandi ári.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 |
Þórarinn Hannesson er fæddur og uppalinn á Bíldudal en hefur undanfarin 13 ár búið á Siglufirði. Þetta er fyrsta ljóðabók hans en áður hefur hann sent frá sér þrjú rit og tvær geislaplötur með frumsömdum lögum og textum auk þess að eiga lög á safnplötum. En eftir hann liggja á annaðhundrað dægurlög og textar. video izlevideo 75video seyretkomik videolarvideo izlekral oyunsiyah peynir
|
|
|
 |
| |