flett05.jpg
Arnfirðingur
Forsíða
Fréttir
Atburðadagatal
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Starfsemi
Félagið
Bíldudals grænar 2003
Bíldudals grænar 2005
Bíldudals grænar 2007
Bíldudals grænar 2009
Menning
Annað
Aðsendar greinar
Pistlar:
Efni frá lesendum

Pistlar:
Eftirfarandi eru bakþankar Hrafns Jökulssonar, teknir að láni úr Fréttablaðinu 1608´04

Flotinn mikli sem hvarf

Sólin ræður ríkjum í Arnarfirði. Hér á Hrafnseyri fæddist Jón Sigurðsson, 17. júní 1811, og hér ólst hann upp og héðan eru fyrstu afrekssögurnar. Um fermingaraldur fór hann að stunda fiskveiðar með pabba sínum en átti bara að fá helming af launum fullorðins manns. Jón sætti sig ekki við það, heimtaði fullan hlut og fékk. Enda var hann duglegur, segir organistinn á Hrafnseyri, sem lóðsar gesti um liðinn tíma.

BÆRINN sem Jón fæddist í er nú safn. Við getum skoðað herbergið þar sem sjálfstæðishetjan fæddist. Og þarna er Arnarfjörðurinn, glampandi fagur.
En það er enginn bátur á sjó. Ekki í dag, ekki í gær. Og varla á morgun.

OKKUR er sagt að auðlindir hafsins séu sameign þjóðarinnar. Það segja þeir á Alþingi. Í kaffistofunni í bæ Jóns Sigurðssonar er hlegið gleðisnauðum hlátri að þessari öfugmælavísu. Staðreyndirnar hér vestra tala sínu dapra máli.

ÞAÐ ER eins og togurunum hafi hreinlega verið stolið, segir gestur í kaffistofu
Jóns, með hraukaðan disk af vöflum, randalínum og kleinum. Hann steingleymir
veitingunum, þegar hann ferðast í huganum milli þorpanna á Vestfjörðum:
Enginn togari er lengur eftir á Patreksfirði, Tálknafirði, Bíldudal, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Súðavík eða Bolungarvík.

ÁÐUR voru meira en tuttugu togarar gerðir út frá Vestfjörðum. Nú er einn eftir í Hnífsdal og kannski tveir, þrír á Ísafirði.

HVAÐ er hægt að gera? spyr roskin kennslukona, sem er í heimsókn á Hrafnseyri ásamt eiginmanni og dóttur. Og þetta er góð spurning, eina spurningin sem skiptir máli. Þetta er spurningin sem stjórnmálamennirnir eiga að vakna upp með á vörunum. Svo eiga
þeir að drífa sig í vinnuna og leysa málin. Það er ekkert sérstaklega flókið, því málið snýst um réttlæti.

HVAÐ hefði Jón Sigurðsson gert? Barátta fyrir réttlæti var alltaf kjarninn í starfi hans og hugsun. Hefði Jón Sigurðsson horft aðgerðalaus á þorpin á Vestfjörðum sofna, eitt af öðru? Hefði Jón Sigurðsson horft upp á togarana hverfa, einn af öðrum? Hefði Jón Sigurðsson
þolað að kvótinn, lífsbjörg þorpanna, hefði sogast burt í nafni hagræðingar, en svo er það kallað þegar sægreifarnir okkar þurfa að auka hjá sér gróðann?

Á ÞESSUM fallega sunnudegi á Hrafnseyri við Arnarfjörð erum við helst á því að Jón forseti hefði barið í borðið, og heimtað hlutinn sinn og Vestfirðinga.

Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is