Ágrip
af sögu Arnfirđingafélagsins
- Eftir Arndísi
Bjarnardóttur ritara stjórnar 2000-2001
[10.02.2001]
Arnfirđingafélagiđ var formlega stofnađ sunnudaginn 2. febrúar áriđ 1964. Á stofnfundi félagsins voru 132 félagsmenn sem skráđu sig fyrir félagsađild, allt brottfluttir Arnfirđingar.
Ađdragandi ađ stofnun ţessa félags er allt frá árinu 1950. Frá ţeim tíma hittust gjarnan brottfluttir Arnfirđingar búsettir í Reykjavík, um ţađ
leyti sem sólin fór ađ sjást á Bíldudal á ný eftir vetrarskugga mánuđum saman, vestra. Fólk drakk saman kaffi og gćddi sér á rjómapönnukökum. Međ ţessum siđ, festist nafniđ “Sólarkaffi” í hugum Arnfirđinga.
Á stofnfundi félagsins áriđ 1964, voru samţykkt lög félagsins upp á 9 lagagreinar, sem ađ meginstofni hafa haldist en í tímanna rás hafa ţau fengiđ örlitla breytinu og frekari útfćrslu.
Lengst af hefur félagiđ stađiđ fyrir kvöldskemmtan er nefnist “Sólarkaffi” og sem haldiđ hefur veriđ í febrúar-mánuđi ár hvert. Hefđbundnar veitingar eru framreiddar af ţessu tilefni, kaffi og rjómapönnukökur. Flutt eru ýmisskonar skemmtiatriđi sem félagsmenn hafa oftast sjálfir stađiđ fyrir eđa fengiđ heimamenn frá Bíldudal til flutnings. Ţá er föst hefđ fyrir fjöldasöng ţar sem sungin eru sólarljóđ Arnfirđinga.
Á milli eitt til tvö hundruđ manns hafa sótt Sólarkaffiđ ár hvert. Samkomurnar hafa veriđ haldnar í Reykjavík, ýmist í Sigtúni, Hótel Sögu, Dómus Medica, Glćsibć, Hótel Borg, Ártúni og á fleiri stöđum ţar sem margir Arnfirđingar eiga góđar minningar viđ samfagnađ og samfundi viđ brottflutta sveitunga sína. Félagiđ hefur m.a. stađiđ fyrir ferđalögum vestur í Arnarfjörđ, myndakvöldum og fleiru.
Arnfirđingarfélagiđ hefur styrkt ýmis verkefni Vestra af tekjuafkomu félagsins ár hvert. Međal verkefna sem félagiđ hefur veitt styrki til, er vegna Öldrunarţjónustu á Paterksfirđi, styrk vegna snjóflóđa er féllu á byggđina á Flateyri 1995, styrk til uppbyggingar á “Gamla Skóla” sem gerđur var upp sem safnađarheimili kirkjunnar á Bíldudal og styrk vegna endurnýjunar á stólum í Félagsheimiliđ Baldurhaga á Bíldudal. Ţađ er eitt af megintilgangi félagsins ađ stuđla ađ eftirfarandi eins og segir í 2.gr. laga
félagsins:
- Ađ varđveita sögulegar menjar hérađsins og forđa frá gleymsku, merkum atburđum og sögulegum viđburđum.
- Ađ efla og viđhalda sambandi viđ heimahérađiđ og tengsl Arnfirđinga sín á milli svo sem međ sólarfagnađi ár hvert.
- Ađ beita áhrifum sínum til velfarnađar og menningar í hérađinu í samvinnu og samráđi viđ heimamenn og félagasamtök ţeirra.
Upp úr 1990 hafa samkomur félagsins oftast veriđ tvćr á ári. Kirkjukaffi ađ hausti, ýmist í Dómkirkjunn eđa Áskirkju í Reykjavík og hefđbundiđ Sólarkaffi í febrúar. Síđustu ţrjú ár, 1997 – 2000, hefur félagiđ eingöngu stađiđ fyrir kirkjukaffi í febrúar. Međ hressum fulltrúum bćđi í stjórn og alm. félagslífi Arnfirđingafélagsins er veriđ ađ blása ađ nýju, lífi í starfsemi félagsins á nýrri öld, s.s. međ útgáfu heimasíđu félagsins og ađ efnt verđi til sameiginlegs ţorrablóts, ţar sem blótađur verđur ţorri og jafnframt sólarkomu fagnađ, nú í febrúar mánuđi. Ţá var haldin kirkjusamkoma í Dómkirkjunni á ađvenntunni, sl. desember og súpumáltíđ snćdd ađ athöfn lokinni.
Ţađ er von mín lesandi góđur ađ viđ lestur ţessa pistils fáir ţú svipađa tilfinningu og ég, ţakklćti og stolt, yfir öllu ţví frábćra fólki sem stóđ ađ stofnun ţessa félagsskapar og öllum ţeim sem lagt hafa hönd á plóg í starfsemi félagsins gegnum tíđina. Ţakklćti til ţeirra eldri fyrir ađ gefa okkur sem yngri erum, kost á ađ hittast og minnast átthaganna í tímana rás. Fyrir unga fólkiđ sem ţetta les, vil ég segja. Hafir ţú enn ekki sem Arnfirđingur kynnst ţessum félagsskap, ćttir ţú ekki ađ láta hjá líđa ađ skrá ţig strax í Arnfirđingafélagiđ sem fullgildur félagsmađur og taka ţátt í skemmtilegu og lifandi samfélagi viđ sveitunga ţína.
Viđ hlökkum öll til ađ sjá ţig.
|