forsida11.jpg
Arnfirðingur
Forsíða
Fréttir
Atburðadagatal
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Starfsemi
Félagið
Bíldudals grænar 2003
Bíldudals grænar 2005
Bíldudals grænar 2007
Bíldudals grænar 2009
Bíldudals grænar 2011
Menning
Annað
Aðsendar greinar
Pistlar:
Efni frá lesendum

Kænukaffi á laugardaginn 27. janúar 2012
Bíldudalskarlar hittast á morgun í Kænunni Hafnarfirði í kaffi og spjall. Reynir Magnússon mun segja frá rafstöðvarverkefninu. Allir velkomnir.




Arnfirðingafélagið fær styrk 24. janúar 2012
Arnfirðingafélagið í Reykjavík var að fá styrk kr. 250.000 frá Landsbanka Íslands í skógræktarverkefnið fyrir ofan Bíldudal og til grisjunar fram í gömlu skógræktini. Þetta er mikil viðurkenning á því starfi sem þarna hefur verið unnið. Á árinu 2011 voru gróðursettar um 5.000 plöntur og er stefnt að því að vera með helst meira á þessu ári. Allt þetta starf er unnið í samvinnu við og undir öryggri forustu skógræktarfélags Arnfirðinga, en formaður þar er Runólfur Ingólfsson og skógræktarfélagi Íslands en framkvæmdastjóri þar er Brynjólfur Jónsson. Það er hægt að telja upp langan lista fólks sem hefur lagt hönd á plóginn varðand skógræktina í Bíldudal, allt þetta fólk á þakkir skilið.

Hafið það í huga í sumar þegar þið farið vestur að koma við á Bíldudal, heimsækja Runólf og fá hjá honum plöntur og tæki til að planta. Hann segir svo til um hvar best er að setja niður.

Árbók Barðastrandarsýslu 2011 20. desember 2011
Árbók Barðastrandarsýslu 2011 er komin út, 22. árgangur.
Uppselt í skötuna 12. desember 2011
Mikil aðsókn er í skötuveisluna miklu í Kænunni á laugardaginn og er allt orðið fullt og ekki hægt að taka við fleiri pöntunum.
Skötuveisla Arnfirðingafélagsins 2011 3. desember 2011
Arnfirðingafélagið verður með skötuveislu í Kænunni Hafnarfirði laugardaginn 17. desember kl 13.

Boðið verður uppá ekta vestfirska skötu, saltfisk, síldarrétti og hval.

Í fyrra mættu 125 manns og var uppselt og er því betra að panta í tíma.

Vinsamlegast pantið hjá:
Guðmundi Bjarnasyni í síma 8624289/5752360, netfang gummibjarna12@gmail.com
og Valdimar Gunnarsson sími 8948503, netfang avg@simnet.is

Arnfirðingamessa í Reykjavík 4. nóvember 2011
Arnfirðingamessa í Áskirkju

Sérstök Arnfirðingamessa verður í Áskirkju sunnudaginn 6. nóvember kl. 11.

Kirkjukór Bíldudalskirkju, Hjálpræðiskórinn, sér um tónlistarflutning í messunni ásamt Guðkompaníinu frá Bíldudal með hjálp góðra manna.
Sr. Sigurður Jónsson, sóknarprestur Ásprestakalls, þjónar fyrir altari en sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, sóknarprestur Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalls, predikar.

Eftir messu verður félagið með kirkjukaffi í safnaðarheimili kirkjunnar. Aðgangseyrir er kr. 1.500, frítt fyrir börn 14 ára og yngri.

Félagið þakkar Áskirkju stuðninginn og hvetur Arnfirðinga nær og fjær til að mæta til kirkju.

Skrá mig á póstlistann!
Nafn
Netfang
 
Skrá
Afskrá
© / ® Arnfirðingafélagið kt. 410288-1179 er skráð átthagafélag - á vefnum frá 16. febrúar 2001 - arnfirdingur@arnfirdingur.is