|
Arnfirðingar, takið frá Laugardaginn 6. nóvember því þá ætlum við að hittast í Húnabúð, Skeifunni 11 Reykjavík og eiga skemmtilegt kvöld saman. Öllum verður frjálst að stíga á stokk og láta ljós sitt skína með söng, hljóðfæraleik, kvæðaflutningi eða gamanmáli. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Magga í síma 896 3109 eða í netfanginu maggi@12og3.is Húsið opnar kl 21.30. og verður dansleikur til kl 3.00. Fyrir dansi leika Arnfirðingarnir og stuðboltarnir Viðar Ástvaldsson og Matthías Ágústsson. Veitingar verða seldar á staðnum. Allir eru hvattir til þess að láta ættingja og vini vita og fjölmenna í Húnabúð. Miðaverð kr. 1000 Aldurstakmark 18 ár.
|